Eimreiðin - 01.10.1952, Qupperneq 11
eimreiðin
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
227
hefur aldrei gert. En hagsmunir hennar og annarra þjóða geta
stundum valdið árekstri, og svo er nú. Er
Landhelgismál skemmst að minnast löndunarbanns brezkra
og löndunarbann. útgerðarmanna á fiski íslenzkra togara, út af
því að íslendingar hafa víkkað landhelgi sína.
Og mátti þó sú framkvæmd ekki lengur dragast, þar sem þurr-
ausin voru orðin að fiski svo að segja öll hin gömlu og þekktu
mið vor umhverfis landið.
Hin nýja útfærsla landhelginnar kemur að sjálfsögðu harðast
niður á íslendingum sjálfum, þó að reynt hafi verið að læða þvi
inn hjá brezkum almenningi, að íslenzku togararnir veiði innan
þeirrar sömu nýju landhelgi, sem brezkum sé meinuð að viðlögð-
um stórsektum og sviptingu afla og veiðarfæra. Hefur vikublaðið
..The Fishing News“, málgagn brezkra útgerðarmanna, gengið
ötullegast fram í því, að breiða út þennan falska og hættulega
áróður.
Hann minnir á landráðaskrifin, sem erlendur vandræðamaður
einn kom á framfæri í ensku blaði á styrjaldarárunum, um ís-
ienzka fiskimenn og útgerð, er urðu völd að misskilningi og leið-
indum. Nú eru það brezkir útgerðarmenn, sem tekið hafa upp
refsiaðgerðir, en ekki brezka þjóðin sjálf. Það orkar mjög tví-
niælis, hversu þakklát hún er þeim fyrir framkomu þeirra í garð
íslenzkra fiskimanna, sem ekki hafa unnið annað til saka en að
fara að lögum lands síns. Veitir sannarlega ekki af, að íslenzka
sendiráðið í London sé vel á verði, mótmæli jafnharðan blaða-
éróðri gegn landhelgislögunum og reki ofan í málgögn brezkra
htgerðarmanna skaðlegar rangfærslur. Greinir þær, sem hr. F.
Huntley Woodcock hefur ritað og bréf, sem nokkrir fleiri Englend-
ingar og Skotar hafa ritað í blöð þar í landi gegn þeim rangfærsl-
um og áróðri, eru oss mikils virði og verða aldrei fullþökkuð. En
betur má, ef duga skal, því að vald blekkinganna er mikið og þjón-
ar þess herskáir.
Annars er staða vor á jarðarkringlunni sú, nú sem áður, að vér
hljótum að hafa víðtæka samvinnu við hinar engilsaxnesku þjóðir.
þess að vænta, að ýfingar nokkurra brezkra útgerðarmanna
veiki ekki traust vort og álit á hinni brezku þjóð. Vér megum
ekki láta bolabrögð nokkurra manna spilla því áliti og þeirri virð-
\nSn, sem brezka þjóðin nýtur í augum yfirgnæfandi meiri hluta
Islendinga. Þó verður því ekki neitað, að þessi bolabrögð eru vatn
a myllu þeirra fáu hér á landi, sem vilja vinsældir Engilsaxa sem
^innstar. Þrátt fyrir hersetu Breta hér í síðustu styrjöld, héldu