Eimreiðin - 01.10.1952, Page 24
240
HERVARNIR
eimueibin
undir fjallahlíðum, en ekki í þorp við sjóinn, þar sem lendingar-
skilyrði voru góð, tekur af öll tvímæli um þetta, svo þar þarf
engra frekari vitna við.
Lágvaxnir laufskógar (en einnig háir eikar- og beykiskógar)
voru hin mestu auðæfi í fornöld og á miðöldum. Þeir voru svona
dýrmætir sem beit eða fóður fyrir fénað. Dýrmætar voru einnig
engjar, einkum áveituengjar, enda er mikið talað um engjar og
áveitur í Grágás. í Norðurálfu, að minnsta kosti norðan Mundía-
fjalla, voru þjóðir þá fákunnandi í akuryrkju á móts við það, sem
nú er, akuryrkjutækin frumstæð, akramir illa hirtir og illa taddir
— og uppskeran eftir því, en auk þess ótrygg, einkanlega á norður-
slóðum. Því voru akrar ekki mjög verðmæt lönd í Norðurálfu þá-
Önundur tréfótur fékk líklega akra sína að fullu bætta með fisk-
inu og hvalrekanum á Ströndum, en það var fljóttekinn og árviss
matarafli, og því dýrmætt. Allt þetta bendir til, að land vort hafi
þá ekki verið svo afleitt feðrum vorum í hlutfalli við ýms önnur
lönd. Og fjarlægðin frá Norðurálfu var ekki einungis til baga.
Hún var einnig næstum fullkomið öryggi gegn utanaðkomandi
ófriði og sennilega stundum nokkur sóttvörn líka.
Þetta opnar oss innsýn í það, hversu geysimikill fólksfjöldi hafi
getað lifað í landinu, og þá líka búið þar, meðan allt landið var
í rækt, en sjávarafli einnig stundaður og landsmenn sátu einir að
honum. Þetta sýnir oss í fyrsta lagi efnahagslegan grundvöll
undir hinni háu menningu, er blómgaðist á íslandi í fornöld. En
það opnar oss ekki síður útsýn yfir það, hvílík hörmung hlaut
að dynja yfir, er sú ræktun landsins, sem ég hef nefnt og bygg^
landsins var grunduð á, tæmdist og eyddist, og landið meira að
segja þar á ofan blés upp og breyttist í þá auðn, sem það nu
að mestu leyti er, og vér höfum fyrir augum, en ekkert annað
en ánauð og allskonar fjárpínd Dana kom í staðinn.
Áður stóðu menn gruflandi yfir því, hvernig landið hefði
hefði getað — breytzt í auðn.
Nú vitum vér þetta ofurvel. Skógurinn var felldur og brenndur,
til þess að fá tún og slægjulönd. Það þurfti víst ekki einu sinn*
að fella trén, — það var víst nægilegt að barksneiða stofninn,
svo þau visnuðu á rótinni og loguðu glatt. Niðurfall svínaræktar-
innar markar, að fyrsta áfanga í eyðing skóganna sé náð, Þv'
svínaræktin var grunduð á skóginum. „Nautalim" var sniðið a
trjánum og hvert fellt tré barkað. Birkibörkur og lim er gott °S
kjarnmikið fóður fyrir naut. Það var hægur vandi að hafa fj°
nauta, meðan sækja mátti í skóginn fóðrið daglega — og nauta