Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1952, Síða 24

Eimreiðin - 01.10.1952, Síða 24
240 HERVARNIR eimueibin undir fjallahlíðum, en ekki í þorp við sjóinn, þar sem lendingar- skilyrði voru góð, tekur af öll tvímæli um þetta, svo þar þarf engra frekari vitna við. Lágvaxnir laufskógar (en einnig háir eikar- og beykiskógar) voru hin mestu auðæfi í fornöld og á miðöldum. Þeir voru svona dýrmætir sem beit eða fóður fyrir fénað. Dýrmætar voru einnig engjar, einkum áveituengjar, enda er mikið talað um engjar og áveitur í Grágás. í Norðurálfu, að minnsta kosti norðan Mundía- fjalla, voru þjóðir þá fákunnandi í akuryrkju á móts við það, sem nú er, akuryrkjutækin frumstæð, akramir illa hirtir og illa taddir — og uppskeran eftir því, en auk þess ótrygg, einkanlega á norður- slóðum. Því voru akrar ekki mjög verðmæt lönd í Norðurálfu þá- Önundur tréfótur fékk líklega akra sína að fullu bætta með fisk- inu og hvalrekanum á Ströndum, en það var fljóttekinn og árviss matarafli, og því dýrmætt. Allt þetta bendir til, að land vort hafi þá ekki verið svo afleitt feðrum vorum í hlutfalli við ýms önnur lönd. Og fjarlægðin frá Norðurálfu var ekki einungis til baga. Hún var einnig næstum fullkomið öryggi gegn utanaðkomandi ófriði og sennilega stundum nokkur sóttvörn líka. Þetta opnar oss innsýn í það, hversu geysimikill fólksfjöldi hafi getað lifað í landinu, og þá líka búið þar, meðan allt landið var í rækt, en sjávarafli einnig stundaður og landsmenn sátu einir að honum. Þetta sýnir oss í fyrsta lagi efnahagslegan grundvöll undir hinni háu menningu, er blómgaðist á íslandi í fornöld. En það opnar oss ekki síður útsýn yfir það, hvílík hörmung hlaut að dynja yfir, er sú ræktun landsins, sem ég hef nefnt og bygg^ landsins var grunduð á, tæmdist og eyddist, og landið meira að segja þar á ofan blés upp og breyttist í þá auðn, sem það nu að mestu leyti er, og vér höfum fyrir augum, en ekkert annað en ánauð og allskonar fjárpínd Dana kom í staðinn. Áður stóðu menn gruflandi yfir því, hvernig landið hefði hefði getað — breytzt í auðn. Nú vitum vér þetta ofurvel. Skógurinn var felldur og brenndur, til þess að fá tún og slægjulönd. Það þurfti víst ekki einu sinn* að fella trén, — það var víst nægilegt að barksneiða stofninn, svo þau visnuðu á rótinni og loguðu glatt. Niðurfall svínaræktar- innar markar, að fyrsta áfanga í eyðing skóganna sé náð, Þv' svínaræktin var grunduð á skóginum. „Nautalim" var sniðið a trjánum og hvert fellt tré barkað. Birkibörkur og lim er gott °S kjarnmikið fóður fyrir naut. Það var hægur vandi að hafa fj° nauta, meðan sækja mátti í skóginn fóðrið daglega — og nauta
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.