Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1952, Page 35

Eimreiðin - 01.10.1952, Page 35
cJ^jóóiÁ í göncjuniim. AÐ var á jólaföstunni eitthvert fyrstu áranna eftir heims- styrjöldina fyiTÍ. Ártalið sjálft man ég ekki með vissu, enda skiptir það ekki máli. Aðfangadagurinn rann upp, kaldur og drungalegur: snjóhraglandi um morguninn, sem breyttist í krapahríð eftir hádegið, en birti upp með kvöldinu. Ég var um ^essar mundir skrifstofustjóri borgarstjórans í Reykjavík og hafði meðal annars það vanþakkláta starf á hendi að sinna beiðn- Urn bágstaddra í bænum, eftir þvi sem fátækranefnd og bæjar- stjorn lagði fyrir og leyfði —, og að afgreiða þær beiðnir eftir beztu getu. Ögleymanlegastur samstarfsmanna minna við þau yerk var Samúel heitinn Ólafsson, fátækrafulltrúi, enda hafði mest saman við hann að sælda. Þenna vetur var atvinnuleysi 1 kofuðstaðnum með mesta móti og þröngt í búi hjá mörgum. Afeðal þeirra hjálparbeiðna, sem bárust borgarstjóraskrifstof- llnni síðustu dagana fyrir jólin, ýmist um hendur fátækrafull- truanna eða beint, var ein frá verkamanni innarlega í Austur- kænum. Hann átti fyrir stórri fjölskyldu að sjá, en hafði verið etvinnulaus um alllangt skeið. Samúel Ólafsson lét þess getið, að þessi maður óskaði einskis annars en að fá vinnu. Hann vildi a^s ekki þiggja af sveit, ef annars væri nokkur kostur. En það Var hægra sagt en gert að útvega mönnum vinnu um þessar tuundir, — og marga erindisleysuna fórum við, þegar slíkur vandi var okkur á höndum. Það var mikið að gera á borgarstjóraskrifstofunni allt frá því að opnað var um morguninn þenna aðfangadag — og fram á Kvoid. Um fjögurleytið kom Samúel til að gefa sína skýrslu um vandamál bágstaddra borgara og beiðnir þeirra um hjálp. Allir, Sern skrifstofunnar leituðu í nauð, munu hafa fengið einhverja meðal annars gat Samúel þess, að fjölskyldufaðirirm gæti fengið atvinnu inni á Kirkjusandi, ef hann '.reysti sér í það starf, sem þar væri í boði. Ég tók að mér að aia heim til mannsins þá um kvöldið og tjá honum þetta. Sjálfur iClusu, og fyrrnefndi

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.