Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1952, Page 43

Eimreiðin - 01.10.1952, Page 43
eimreiðin ISLANDSVINURINN HANS HYLEN 259 !ega skilið, að hans sé ítarlegar minnzt á íslenzku heldur en gert hefur verið, en af því tagi veit ég ekki um annað en hina vinsam- legu og maklegu grein Arnljóts Jónssonar í Vísi 8. maí 1939. Hins vegar er það allra minnsta þökk, er vér fáum goldið slíkum vel- gerðarmönnum bókmennta vorra á erlendum vettvangi, að vér gefum menningar-starfsemi þeirra í vora þágu einhvern gaum, °g sýnum með þeim hætti, að hún hefur eigi þegjandi fram hjá oss farið. I. Hans Hylen er Rogalendingur að ætt og uppruna, fæddur 8. maí 1876 á bóndabæ innst í Hylsfirði í Rygnafylki (Ryfylke) í Noregi. Fylkisskólanám stundaði hann 1891—92; lauk gagnfræðaprófi 1894, en kennaraskólaprófi 1901; var sama ár settur kennari að Sauðá á Rogalandi og fastakennari þar þrem árum síðar. Varð skólastjóri Flogstad barnaskólans að Sauðá 1927 og gegndi því starfi samfleytt þar til hann lét af því embætti fyrir aldurs sakir árið 1946, er hann stóð á sjötugu. Samhliða kennslustarfinu hefur Hylen, sem er maður óvenju- lega vel vakandi andlega, stöðugt haldið áfram að mennta sig og gert sér mikið far um að fylgjast sem bezt með þróun fræðslu- mála og nýjungum á því sviði. Með styrk úr ríkissjóði sótti hann kennaranámskeið í Oxford 1909 og á árunum 1910—25 mörg kennaranámskeið á ýmsum stöðum. Hann stundaði einnig fram- haldsnám á Kennaraháskólanum að Hlöðum 1922—23. Hylen tók ennfremur þátt í hinu norræna kennaramóti, sem haldið var að Laugarvatni í júlí 1938, og rættist þá gamall og hjartfólginn draumur hans um íslandsför; en bezt er að láta hann !ýsa þvi með eigin orðum úr formálanum að þýðingasafni hans úr lslenzku, Millom frendar, og mun lesendum Eimreiðarinnar ekki Verða skotaskuld úr því að skilja nýnorskuna, jafn skyld og lík °g hún er íslenzkunni: >>Like frá ungdomen hev eg arbeidt med islendsk dikting. Dette arbeidet fekk meg til á stunda etter á fá sjá Island og tala med fvendane der ute i nordhavet. Og i 1938 vart det endeleg hove W á gjera ei ferd. Nordenlagi hadde skipa eit lærarskeid pá folkehegskulen ved Laugarvatn, 95 km. nordost frá Reykjavik, °g det var herlege dagar. Alt var liksom so forunderleg kjent og hjært, Ein lyder og minnest dei gamle, sterke tider i dette strenge °g einslege vinterlandet med grone dalar og blánande tindar millom hrivkvita fenner. Og nár eg hoyrde dei sterke, ljomande songane

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.