Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1952, Page 61

Eimreiðin - 01.10.1952, Page 61
eimreiðin MANNASKIPTI 277 Eiginlega kynntist hann henni ekki. Lilja kynntist engum. Hún þekkti alla, það er að segja, þegar hún var ekki svo út úr full, að hún þekkti yfirleitt nokkurn skapaðan hlut. Enginn vissi út ef hverju Lilja drakk. Líklega bara af því, að henni hefur þótt það gott. Kannske hefur það legið í ættinni. Lilja átti fjölda vina. Þeir drukku flestir líka. Lilja var ung °g lagleg kona. Auk þess hafði hún eitthvað það við sig, sem hændi Hermann að henni. Enginn vissi hvað það var. Nema hvað honum var farið að verða tíðlitið inn í bragga, þar sem félagsskapurinn sat að sumbli. Nú verður að geta þess, sem gert er. Hermann var enginn drykkjumaður, en hins vegar lét hann oft af hendi rakna fyrir flösku og flösku, og er ekki að orðlengja það, að þær komust upp í fjórar og fimm á einu kvöldi. Náttúrlega komst hann ekki hjá þvi að kanna, hvernig brenni- yín væri á bragðið. En svo mikið var vist, að hann einn hafði rænu á að ná í bíla á aflíðandi nóttu og borga þá. Hann hafði jafnan vakandi auga á Lilju, en hún ekki á honum. Komið gat það fyrir, að hún þyrfti að bregða sér frá til að vera nokkra stund í einrúmi með einum vini sinum, og hafði Hermann auðvitað ekkert við það að athuga. Eða að minnsta kosti lét hann það ekki uppi. Legar Hermanni hafði eyðzt skotsilfur, kvongaðist hann Lilju. ^ raun og veru er heil saga að segja frá því, þótt henni sé sleppt hér rúmsins vegna. Eins og lesandann mun hafa rennt grun í, var hann alla tíð ástfanginn af Lilju. Og í hvert skipti, sem hann náði tali af henni allsgáðri, lét hann ekki hja liða að setja henni hyrir sjónir, hve miklu hollara það væri æsku hennar og fegurð að eignast gott heimili. Og hann bætti við með sjálfum sér, að hafa fyrir góðum eiginmanni að sjá, þó að hann segði það ekki. Lnginn vissi hvaða hugsanir hringsnerust í hinu fallega konu- höfði, þegar hún sagði já, ef þar hefur þá ekki verið tómagangur. Legar karlmaður hefur sett sér mark, þá hættir hann ekki rið fyrr en hann hefur náð því. En svo þegar hann ætlar að riga góða daga, þá tekur konan við. Svona fór a. m. k. fynr vini, oúrium, Hermanni. Ég leit nokkrum sinnum inn til Hermanns á þessum góðviðriskafla síðsumarsins í lífi hans. Hann lék allur a hjólum af ást til Lilju og hafði varla tíma til að tala við fyrir búðarferðum. Enda átti Lilja ekki heimangengt, þvi

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.