Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1952, Side 66

Eimreiðin - 01.10.1952, Side 66
Máttur mannsandans eftir dr. Alexaiuler Cannon. VI. kafli. Svefn og draumar. Við skulum nú athuga svefninn og draumlífið nokkru nánar frá hinni tæknilegu hlið málsins, ef svo má segja. Meðan við sof- um, heldur starfsemi líffæranna áfram. Frá lífeðlisfræðilegu sjónarmiði er sofandi maður í fullu athafnafjöri: meltingarfærin starfa, augun dragast sundur og saman, öndunarfærin starfa, kynfærin starfa, svitakyrtlarnir starfa, ósjálfráða taugakerfið starfar og vöðvarnir slakna og hvílast. Sem stendur eru uppi fimm kenningar um svefninn, sem verðskulda, að þeim sé gaumur gefinn. 1. LífefnafrœSilega kenningin. Samkvæmt henni á svefn- inn að stafa af því, að eftir því sem líði á vöku dagsins, hlaðist fyrir í vefjum líkamans deyfandi kolsýring, sem valdi eiturverk- unum í taugakerfinu. Afleiðing þessa sé svefninn, en hann koim svo aftur á jafnvægi og hreinsun, sem geri manninn aftur færan til að vaka um ákveðið skeið. 2. Hringrásarkenningin. Hún er í því fólgin, að blóðið i líkama mannsins minnki með áreynslu í tímanum, og að þessi rýrnun í blóðinu endi með svefni. I svefninum eykst svo blóð- forðinn aftur smám saman, en við það verður svefninn stöðugt léttari og léttari með liverri stund, sem líður, unz maður kemst til vökuvitundar á ný. 3. Orkukenningin gerir ráð fyrir orkumissi að deginum, sem lýsi sér í þreytu, og þreytan valdi svefni. Hann hleður síðan líkamann orku á ný, og maður vaknar hress og endurnærðm • 4. Taugaaflskenningin. Taugarnar missa afl sitt að degm- um, og er þessi kenning því að nokkru leyti orkukenningin stað- færð upp á taugakerfið eingöngu. Smásjárrannsókn á frumnm

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.