Eimreiðin - 01.10.1952, Page 69
EIMREIÐIN
MÁTTUR MANNSANDANS
285
með engu móti fengið súlurnar til að verða jafnháar. Hann
hrökk upp frá þessum uggvænlega draumi og fann þá, að
faetur hans höfðu flækzt í rekkjuvoðirnar við fótagafl rúmsins,
þannig að hann hafði teygt úr öðrum fætinum langt um meir
en hinum, og af þessu komu örðugleikarnir í draumnum á því
fá súlurnar til að verða jafnlangar. Sú var skýring hans á
draumnum, og ég hygg hana rétta, því að kvíðvænlegir draum-
ar stafa oft af svipuðum orsökum, og skiptir þá ekki máli, hvert
efni þeirra er. Orsakirnar geta bæði stafað utanað og frá sjálfu
líkamsástandi sofandans. Þannig dreymdi mann nokkurn, að
verið væri að hengja hann og hrökk upp af þessari martröð.
Seinna um daginn lagðist hann í rúmið með svæsna hálsbólgu.
Kún hafði verið að búa um sig í honum um nóttina, er hann
úreymdi drauminn, en brauzt út til fulls daginn eftir.
f draumi losna þær hömlur, sem hvíla á þrám manna og
oskum í vöku. Niðurbældar óskir vökunnar leysast úr læðingi
1 draumi. Þessar hömlur er ekki að finna í vökulífi ungbarna.
Þess vegna eru draumar þeirra endurspeglanir óska þeirra í
vöku. Hjá fullorðnu fólki verða draumarnir skekktar myndir
'lf niðurbældum þrám vökunnar. Þessar myndskekkjur drauma-
1 sms lýsa sér aðallega á fernan hátt.
f ■ Samanþjöppun hugmynda. Draumurinn verður hræri-
Rýautur af alls konar hugsunum, myndum og mönnum úr vöku-
1 i dreymandans. Draumurinn getur orðið samsetning á mörg-
J^ni stöðum, þekktum úr vöku, og draummaðurinn til orðinn úr
l;ittum. lunderni og sérkennum margra manna, sem dreym-
andinn þekkir eða man úr vöku.
Tilflutningur. 1 draumi getur áherzlan, sem maður legg-
J*r i vöku á einhverja sérstaka ósk eða þrá, færzt til í draumi,
ntzt til aukaatriða frá þvi sem er aðalatriðið. Þýðingarlaus
aukaatriði standa lifandi fyrir hugskotssjónum manns í draumn-
J*ni, en mikilvæg aðalatriði verða óskýr og dauf. Tilfinningin
ynr ákveðinni persónu getur í draumnum færzt yfir á allt aðra
Persónu, án þess að sjálf tilfinningin dofni við það.
d- Draumsmíð. Stundum verður draumurinn að samanhang-
andi athafnaröð í dramatísku formi. Þátttakendur draumsins
aga sér þá að vísu á fjarstæðukenndan og óvæntan hátt, en
arangurinn af draumsmiðinni, þótt óskýr sé venjulega og hræri-