Eimreiðin - 01.10.1952, Blaðsíða 72
288
MÁTTUR MANNSANDANS
eimreiðin
af staS gegn þeim með þeim grimmdarlegu afleiðingum, að henni
var meinað að dvelja hjá manni sínum. En hún var sannfærð
um það, að á sínum tíma myndi þjóðhöfðinginn, maður hennar,
sem átti sjúkrastofnunina, sem hún dvaldi i, eins og reyndar
allar aðrar opinberar byggingar í landinu, koma og frelsa hana
úr ánauðinni. Síðan myndu þau komast til valda aftur, setjast
í hásæti rikisins og stjórna því síðan farsællega til æviloka.
Sjúkrasaga þessarar konu var sú, að hún var að því komin að
giftast ríkum og mikilsmetnum manni, enda sjálf af auðugu
fólki komin, þegar hún varð fyrir þvi óláni að missa bæði heimih
sitt, fjármuni og stöðu sína í þjóðfélaginu, sem svo varð til þess,
að ekkert varð úr brúðkaupinu. Þegar þetta gerðist virtist hún
fullkomlega heilbrigð andlega og leið heldur ekki neinn beinan
skort, þar sem enn átti hún eftir smávegis tekjustofn, sem hún
hefði getað lifað af þægilegu lífi, með því að gæta ýtrustu spar-
semi. En eðlilega saknaði hún mjög fyrri velsældar, þegar hun
var bæði auðugasta og mest dáða konan í öllu héraðinu, þar sem
hún og fjölskylda hennar höfðu átt heima. En hún gerði meira
en sakna liðinna velsældartíma, því að hún neitaði blátt áfram
að viðurkenna kaldar og miskunnarlausar staðreyndirnar, vild1
ekki kannast við, hvernig komið væri fyrir sér og féll smam
saman í eins konar öfgafullt dagdraumaástand, sem hún hefur
ekki losnað úr aftur enn þann dag í dag. f því andlega ástandi,
sem hún er nú, hefur hún ekki aðeins náð öllu því aftur, sem
hún missti, heldur einnig margfaldað auð sinn, völd og fram-
tíðarmöguleika, í eigin ímyndun. Ástarævintýri hennar hefm
náð hámarki og reynzt dásamlegra en hún hafði nokkru smm
þorað að vona áður. f stað þess að verða æðsta konan heima 1
héraði sínu, verður hún innan skamms drottning heils stoi-
veldis með lönd og þjóðir, sem lúta henni, í stað nokkurra þorpa
og þeirra íbúa áður. Hún hefur hlotið frið í kringumstæðum,
sem voru henni óþolandi áður, og notað til þess þá aðferð að
skjóta sér algerlega undan veruleika lífsins og lifa í fullkommm
sjálfsblekkingu.
ímyndunaraflið flytur okkur æði oft á vængjum sínum burt
frá köldum staðreyndum lífsins. Við ímyndum okkur, að V1
höfum hlotið uppfyllingu óska okkar og vona og látum eins °S
allar raunverulegar hindranir, sem í vegi eru, séu alls ekki 1