Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1952, Page 73

Eimreiðin - 01.10.1952, Page 73
eimreiðin MÁTTUR MANNSANDANS 289 ViS byggjum loftkastala, misjafnlega mikla og misjafnlega marga vísu, og innan vissra takmarka eru slíkar loftkastalabygg- lngar ekki aðeins skaðlausar, heldur geta líka verið gagnlegar, því að þær geta hert okkur í baráttunni fyrir því að flytja loft- kastalana niður á jörðina og láta drauma okkar rætast. Freud heldur því fram, að í hverjum draumi sé falin dulin °sk. Svo mikið er víst, að í hverjum draumi er bæði dulin ^ierking, sem ekki nær að opinberast í meðvitundinni, og einnig yfirlýst efni, sem þar birtist. Það af draumnum, sem kemst inn 1 vökuvitundina, er eins og mót, sem kjarni draumsins hefur steypt sig í, oftast ófullkomið mót, sem túlkar ekki nema ör- Htið brot þeirrar sögu, sem gerist i draumnum. Kjarni draums- lns er aftur á móti sjálf hugsjónin, hneigðin eða óskin, sem djúpvitund dreymandans er að reyna að koma á framfæri. h>rauma verður að taka lið fyrir lið og leysa þá upp til þess að komast sem næst kjamanum eða alveg að honum, þessum ^eginkjarna, sem einstaklingnum veitist svo erfitt að skynja. í-g hef talað um loftkastaladrauma. Gleymið ekki að flytja loftkastalana niður á jörðina. Gerið andlegu getuna að efnislegri reynd hvar sem unnt er. Þig dreymir um mikla og glæsilega rramtið þína, og ég fullvissa þig um, að það er á sjálfs þín valdi láta þann draum rætast. Þú gerir það á þessa lund: Allt, sem þér er falið að gera, skaltu leysa af hendi af heilum og óskiptum éhuga og fullri athygli, leggja þig allan fram í verki. Inntu störf þín þannjg af liendi, að þeir, sem yfir þig eru settir, hljóti a® veita því eftirtekt. Þú getur neytt þá til þess að taka eftir Per, ef þú ert nægilega einbeittur og gæddur heilbrigðri skyn- Semi. Þetta er allt undir sjálfum þér komið. Það ber launin i s)álfu sér, að vera heill í starfi. Það er allt annað að kunna að ^eta sitt eigið manngildi en að blása sig upp af sjálfselsku og eig- lngirni. Ófögnuð eigingirninnar skaltu forðast eins og heitan eld- lnn- Rétt sjálfsmat krefst sjálfsstjórnar. Kunnirðu að meta mann- gildi látt, þá muntu einnig læra að stjórna því með kaldri yfirveg- nn og rn f þar úna æðri öfl en þú hyggur. Það skaltu muna og þar f tlr hreyta. Þá mun þér með tímanum takast að flytja loftkastala Plna niður til móður jarðar, og draumar þínir munu í sannleika l0etast. Þú munt þá verða lifandi dæmi um sannan afburðamann °g fullkomna listina að lifa í giftudrjúgri athöfn og starfi. 19

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.