Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1952, Síða 78

Eimreiðin - 01.10.1952, Síða 78
294 RITSJÁ EIMREIÐIN sá misskilningur, að hann telur sig „trúlausan", en er það þó ekki. „Og fólkið lærði sitt faðirvor og kver og frelsara sínum og guði í lotning kraup, en heilög þrenning þvældist fyrir mér og þvermóðskufullur sviti af enni mér draup, ég stóð, eins og auli, andspænis þeim, sem trúa og eiga við frið og rósemd hjartans að búa.“ Hann öfundar þá, sem „aldrei vefj- ast í vafa“, en þó er svo að heyra, að hann átti sig ekki fullkomlega á því, af hverju bölið stafar. 1 kvæðinu „Haustmyrkur" (bls. 69), sem er ágætt, sér hann þó ljóma af perlu sannleikans, að minnsta kosti í leift- ursýn (sbr. „og það varð ljós“). Ann- ars eru kvæðin mörg þrungin af efa og trega og harmi yfir því, sem af- laga fer. Er það eðlilegt. Það er svo sem ekki nema náttúrleg og nærri því sjálfsögð tilfinning hugsandi manns og skálds á þessum tímum! Eða er það ekki svo? Bezta kvæðið í bókinni er, að minu áliti, „Eftir liðinn leik“ (bls. 56). Það er ljómandi fagurt ljóð, létt og lipurt og þrungið dulmagni góðs skáldskapar. Auk þess vil ég nefna kvæðin „Ein er sú nótt“, „Að leiks- lokum“, „Hin ókomna tið“, „Nótt“, „Tál“, „Og það var ekkert ljóð“, „Síð- sumarnótt“, auk „Haustmyrkurs", sem áður er getið. Öll eru þessi kvæði góð. Skáldið hefur tvímælalaust góðar gáfur til ljóðagerðar. En hann vant- ar örugga (eða sæmilega örugga) lifsskoðun, að því er virðist, eftir þess- um kvæðum að dæma. Þann grund- völl er nauðsynlegt að hafa fyrir þá, er fást við skáldskap, og menn verða sjálfir, hver einstaklingur, að grafa niður á þann fasta grundvöll. Gesti hættir stundum til að hætta við hálfgerð kvæði, og það góð kvæði, af því að hann hefur ekki ennþa brotið málið til mergjar, áður en hann fer að fjalla um það. Gestur er ekki einn skálda um slíkt, enda getur það verið fullkomlega leyfilegt hverj- um rithöfundi og skáldi að leiða at- hygli skynsamra manna að málum án þess að leysa úr vandanum að nokkru leyti eða neinu. Er þetta al- titt, einkum nú á síðustu tímum, að höfundar lýsi ýmsum vandræðum og flækjum án þess að gera tilraun til þess að greiða úr eða gefa úrlausmr. En til þess að ná verulegum árangri sem skáld, tel ég að skáldið verði að hafa lífsskoðun, sæmilega ör- ugga og fast mótaða, hvort sem su skoðun kemur heim við skoðun fjölda eða fárra. Fáir losna alveg við efann, hinn leiða fylgifisk manna, en tak- mark verða menn að hafa, háleitt og eftirsóknarvert, aS eigin dórni, nokkuð verulegt á að verða úr þeim- Þorsteinn Jónsson. HEIMAN ÉG FÓR (sjálfsmyni œskumanns) eftir Halldór Kilj an Laxness. Rvík 1952 (Helga- fell). Handrit, sem legið hefur í drasli hjá frönskum munkum suður í Ev rópu og síðan komizt í hendurnar a íslenzkum mólfræðingi vestur í BaR1 more, en urðað af höfundinum sjálf um fyrir nær tveim óratugum sein óhæft til birtingar, er nú út koinið a prent með samþykki þessa sama höf undar og með formólsorðum eftn hann, rituðum um sumarmál á þVI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.