Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1959, Side 38

Eimreiðin - 01.10.1959, Side 38
276 EIMREIÐIN eitthvað meir en lítið þjakaði konuna og að bóndi liennar var orsök í því á einhvern hátt. Hún var hreint ekki viss um, að hún væri rugluð, þótt tal hennar væri undarlegt. Hana langaði til að lijálpa henni. Hún reis úr sæti og færði sig upp í sófann til hennar og talaði til liennar. Jórunn grét látlaust og svaraði engu fyrst í stað. Loks varð gráturinn að þungum, sogkenndum stunum, eins og hún væri að missa andann. Læknisfrúin vissi, að hið versta, var af- staðið. Þarna var eitthvað, sem safnazt hafði fyrir, en þurfti að fá útrás. Þetta virtist vera sárþjáð kona. Frúin gat ekki unað því, að hún færi svona hrygg frá henni. Hún fór nú að tala við hana, sagði, að sig langaði til að skilja hana og tók að spyrja um heimilislífið og sambúð þeirra lijóna. Grátur Jór- unnar sefaðist loks, svo að hún gat svarað frúnni nokkurn veginn skilmerkilega. Hún fann, að frúnni gekk gott eitt til. og var henni þakklát fyrir nærgætni liennar og umhyggju- Hún var svo hrygg og særð, að hún vissi ekki, ltvað hún átti af sér að gera. Eins og komið var, stóð henni á sama, þó að frúin vissi allt um hagi hennar. Jú, heimilislífið var friðsamt. Aldrei rifrildi né úlfúð. E* hún var lasin, lét Þorgeir sér annt urn hana og var þá ölluiR stundum heima. Það var aðeins eitt, sem liafði þjáð hana, hve öllu kvenfólki leizt vel á Þorgeir, og auðvitað hafði liún tru- að honum. Eftir að hafa létt á hjarta sínu, varð henni hughægra, þ° sárskammaðist hún sín fyrir að trúa ókunnri konu fyrir leynú- armáli sínu. Þær sátu hljóðar um stund. Svo tók frúin að spyrja um til- hugalíf þeirra, Þorgeirs og hennar, og hvar og hvenær þaU hefðu kynnzt. Jórunn gaf greið svör. Þorgeir liafði verið kaupamaðui hjá föður hennar. Hún var þá átján ára. Þau felldu strax hug1 saman. Föður hennar féll vel við Þorgeir. Hann var góðu1 sláttumaður og góður verkmaður. En er gamli maðurinn komst að samdrætti þeirra, sneri hann við blaðinu. Þorge11 var kominn af fátæku fólki og alinn upp á sveitinni. Faðu liennar kallaði hann sveitarlim og lét hann óspart skilja, a hann væri enginn maður handa dóttur sinni. Verst var, a

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.