Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1961, Page 98

Eimreiðin - 01.01.1961, Page 98
86 EIMREIÐIN og Guðrún Ásmundsdóttir fór með hlutverk Tessie, þjónustustúlkunn- ar á heimili Barttets-hjónanna. All- ir fóru þessi leikendur vel með hlut- verk sín, en sérstaklega athyglis- verður var leikur Guðrúnar. Þýð- ing Sverris Thoroddsens á leiknum var lipur og hnittin. II. Hinn 6. nóvember s. 1. frumsýndi Leikfélagið leikritið „Timinn og við“ eftir brezka rithöfundinn og J. B. Priestley. Hefur höfundurinn um áratugi verið talinn í fremstu röð brezkra rithöfunda. Hann hef- ur samið fjölda ritgerða, sem gefn- ar hafa verið út í úrvali og margar skáldsögur og leikrit, sem hlotið hafa mikið lof bæði í heimalandi höfundarins og annars staðar. Fyrsta leikrit hans, Dangerons Corner (1932) vakti þegar mikla athygli og þótti bera ótvírætt vitni um mikla dramatíska gáfu liöfund- arins. Síðan lrefur Priestley samið fjölda leikrita og hafa þau flest verið sýnd víða um heim. í leikritum sínum tekur Priesley til meðferðar hin ýmsu vandamál mannlegs lífs, bæði í gamanleikjum og harmleikjum og í sumum þeirra beinist hugur hans að heimspeki- legum hugleiðingum, einkum að ýmsum kenningum um eðli tímans og áhrif hans á mannlífið. Má segja að þetta efni hafi orðið einskonar sérgrein Priesley’s. Þannig fjalla leikritin „Tíminn og við“ (Time and the Conways), „Ég lief kom- ið hér áður“ (I have Been Here Be- fore) og „Music at Night“ öll um þetta efni, hvert á sína vísu. Þykja þessi leikrit einna athyglisverðust og áhrifamest allra leikrita höfund- arins, enda eru þau mjög sérkenni- leg og bera vott um skemmtilega hugkvæmni hans. Leikrit Priestley’s sem hér hafa verið sýnd, önnur en „Tíminn og við“ eru: „Ég hef kornið hér áður“, sem Leikfélag Reykjavíkur sýndi árið 1943. „Gift eða ógift“, er L. R. sýndi árið 1945 og „Óvænt heimsókn”, sent frumsýnt var í þjóðleikhúsinu haustið 1950. í leikritinu „Tíminn og við“ er meginefnið hin torræða spurning: Hvað er tíminn? Er hann aðeins hugarórar og blekking, eða er liann illt og óhagganlegt lögmál, sem ekki verður umflúið? Höfundurinn gefur vitanlega ekki bein svör við þessurn spurningum, en með því að láta áhorfandann skyggnast bak við fortjaldið til hins ókomna, gef- ur hann í skyn, að þau öfl, sem skapa mönnunum örlög, búi i þeim sjálfum, rökrétt og óhaggan- leg. Fjallar höfundurinn um þetta efni á sérstæðan og áhrifamikinn hátt og kemur áhorfandanum mjög á óvart. Leikritið er í þremur þáttunr og gerist á heimili Conway-fjölskyld- unnar. Frú Conway er ekkja og býr með börnum sínum sex, fjórum dætrum og tveimur sonum. Eru þau öll uppkomin og ærið ólík um skap- gerð og hugðarefni. Þegar leikur- inn hefst er mikil glaðværð á Con- way-heimilinu og margt skrafað því að ein dætranna á tuttugu og eins árs afmæli þetta kvöld. Fyrsti og þriðji þáttur leiksins eru í nánum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.