Eimreiðin - 01.01.1961, Blaðsíða 106
94
EIMREIÐIN
öld fram til 1760, en þetta er fyrra
bindi af tveim um átjándu öldina.
Ritið er að formi til hliðstætt bók-
um þeim, sem Gils Guðmundsson rit-
höfundur tók saman um tuttugustu
öldina og öldina sem leið, en þar er
efnið sett upp í eins konar dagblaðs-
formi, enda að mestu leyti stuðzt við
prentaðar heimildir, einkum úr blöð-
um. Jóni Helgasyni liefur að því leyti
verið meiri vandi á liöndum en fyrir-
rennara hans, að tímabilið, sem liann
fjallar um, er snautt af öllum prent-
uðum blöðum og lítið er af tímaritum,
sem liægt liefur verið að styðjast við, og
aðrar prentaðar lieimildir, sem segja
frá landshögum og þjóðlífi, eru af
skornum skammti, fyrr en kernur fram
á miðja öldina. Höfundurinn hefur þó
stuðzt við einstakar prentaðar heimildir
er hann hefur fundið á víð og dreif í
bókum og ritgerðum, en einkum lrefur
hann leitað fanga í annálum, prent-
uðum og óprentuðum, bréfabókum
biskupa og amtmanna, dómabókum,
lögþingsbókum og margvíslegum skjöl-
um og handritum í söfnum. A þennan
hátt hefur hann dregið saman mikinn
fróðleik frá þessu tímabili, tínt sam-
an brot og mola og fellt saman í frá-
sagnir. Að sjálfsögðu er hér ekki urn
að ræða nákvæman annál aldarinnar
eða sagnfræðirit. Margt lilýtur að hafa
undan skotizt en öðru kannski gerð
fyllri skil en efni standa til. En það
hlýtur ávallt að verða matsatriði þess
er til slíkrar bókar safnar, hverju skal
til skila haldið og hverju sleppt, hvað
gert er að stórmáli og liverju að litlu
getið. En þarna er gripið á mörgu, og
helztu einkenni í fari aldarinnar dreg-
in fram í dagsljósið, auk þess, sem get-
ið er margra manna, sem einkum koma
við sögu átjándu aldarinnar. Greint er
frá harðindum, náttúruhamförum, og
mannfelli, stórdeilum, afbrotum og
þungum refsingum og loks framfara-
viðleitni í félags- og atvinnumáluin,
auk rnargs annars.
Myndir frá átjándu öldinni eru að
sjálfsögðu fáar til. Þó eru í þessari bók
urn 150 myndir, en margar eru þær af
munum úr þjóðminnjasafninu, upP'
dráttum, handritum, bókartitlum og
iiðru þessháttar.
Þótt fljótt sé yfir sögu farið í tíld-
inni átjándu og margt hljóti ávallt að
verða hulið frá svo löngu liðnum tíma
og þegar horfið í gleymsku, er þetta
samt hið fróðlegasta rit, og til þess fall-
ið, að leiða fróðleiksunnandi lesendur
á sporið, ef þeir vilja kynna sér nánar
einhverja af þeim atburðum, sem þar
er drepið á. I. K■
Axel Thorsteinson: Á FERÐ OG
FLUGI í landi Sáms frænda. "
Ferðaþættir frá Bandaríkjunum.
Bókin flytur rúmlega 20 þætti frá
Bandaríkjaför höfundarins liaustið
1958, en þangað fór hann i boði UpP'
lýsingaþjónustu Bandaríkjanna og
ferðaðist urn mánaðartíma um þver og
endilöng Bandaríkin ásamt blaða-
mönnum frá sjö NATO-ríkjum öðruni-
Virðist Axel hafa fært sér vel í nyt
þessa ferð, þar sem afraksturinn er
heil bók, að ýrnsu leyti fróðleg og at-
hyglisverð. í ferðinni rifjaði hann líka
upp gömul kynni við land og þjóð,
en hann dvaldist nokkur ár í Banda-
ríkjunum og Kanada fyrir 40 árum og
var meðal annars um eins árs skeið 1
Kanadiska liernum og komst til víg'
stöðvanna í Evrópu síðasta ár lieirnS'
styrjaldarinnar fyrri. Að sjálfsögðu hef'
ur margt breytzt vestra á þeim 40 ár-
um, sent liðin eru frá því Axel Thor-
steinson dvaldist þar, en þó hefur
fyrri reynsla lians og þekking koinið
honum að góðu liði í þessari ferð.