Eimreiðin - 01.09.1963, Page 10
194
EIMREIÐIN
Vordagur við Dauðahaf
Hér soðnar bráðum allt, sem ekki nœr
í einhvern dropa vatns að fróa og hugga.
Og himingeislinn brunabjartur slœr
til bana hverja jurt, sem á ei skugga.
Því fjöllin leiftra Ijósbleik ncer og fjcer,
hér logar sjálfur himinblámans svali
og teygir sárar, silfurhvítar klcer
um sviðnar hlíðar niður i grœ?ia dali.
Og brekkan engist undir Ijóssins byrði,
en aldnir meiðar stynja hélugráir
af Jntrru rylti og þyrstum greinum blaka.
— En veiztu, hvort það lif er lítils virði,
sem Ijóssins Guð á berar auðnir stráir,
þótt hvitur eldur heimti það til baka?
Rapallo1)
Hér er svo skammt á milli fjalls og fjöru:
Ein fögur, snarbrött lilíð,
sem horfir móti sól úr svölum lundum
á sævarmiðin blá og við.
Hér vaka lika veiðiaugun snöru,
hér vaka önnur tinnudökk og blíð.
En bœði slara heit á feng og fœri
og fœrisins er neytt á öllum stundum,
sem stjörnunóttin hlý og himins sól
úr höndum drottins strá um þessi ból.
1) Frægur baðstaður á Ligwiskuströndinni austur frá Genúa.