Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1971, Blaðsíða 37

Eimreiðin - 01.09.1971, Blaðsíða 37
meistarinn 101 „Takk,“ sagði hinn og hvarf fyr- ir hornið. „Mér virtist ég þekkja mann- inn,“ sagði gömnl kona. Hún stóð álút eins og hún væri að kraka með höndunum ull oní meis og gjóaði augunum upp og til hliðanna. „Haltu kjafti,“ sagði náttúru- mikli maðurinn og sparkaði í hana. „Förum að honum, sækjum að honum. „Brennum hann inni,“ sagði hann svo. „Lítil karlmennska væri það,“ sagði gamall maður. „Horskir eru hérskir menn og engir Flosar.“ „Alltaf fellur mér betur Lax- dæla en Njála,“ sagði snússmaður- inn. „Við verðum að hafa hendur á manninum áður en hann fremur eitthvert illvirki," sagði maðurinn sem tekið hafði að sér að vera á utkikk. „Hann er farinn að hrækja á fiskinn." Fólkinu varð orðfall 'en náði því UPP aftur með sameiginlegu átaki og spurt var með seimingi: „Er hann að hrækja á fiskinn?" „Já,“ sagði maðurinn, „áðan þeg- ar ég ætlaði að kíkja fyrir hornið skaut hann að mér logandi elds- spýtum með því að klemma þær milli fingursins og strokflatarins a stokknum og nú er hann farinn að hrækja á fiskinn." Maðurinn Var hálfkjökrandi. >,Við svo búið má ekki standa lengur,“ sagði maðurinn sem verið hafði í Vesturh'eimi. Hann spark- aði í plastbrúsa, beiglaðan og skít- ugan með stóru gati neðanvið stút- inn, sem lá í moldinni við fætur hans. Svo kvað hann uppúr: „Þetta verður að athugast." Logandi eldsspýta kom fljúg- andi fyrir skúrhornið. Fólkið kippt- ist við og sköllótta kerlingin sagði ósjálfrátt: „Málið er í athugun.“ „Hér verður eitthvað að aðhaf- ast,“ sagði gamall maður. Hann var auðkennilegur frá öðrum gömlum mönnum í hópnum á því að liann var alveg 'eins og gamall maður sem stóð við hliðina á honnm. Þeir hljóta að hafa verið tvíburar. Þeir voru báðir sorgbitnir á svip og hvor um sig alveg eins og hinn nema annar hafði bólu á jreirri kinninni sem liinn hafði ekki bólu. Annar tvíburanna sagði: „Gæði vörunn- ar var óvéfengjanleg þegar ég yfir- fór staflann." Hinn tvíburinn bætti við, en þeir hugsuðu og töl- uðu allt í sam'einingu: „Þessi ófyr- irsjáanlegi útgjaldaliður verður ekki greiddur af fyrirtækinu og verður að ályktast á kostnað kaup- endanna." Til hvers þessum orðum var beint var ekki ljóst þar sem engin var viðstaddur sem skildi fagmál nema þeir sjálfir, héldu þó áfram ekki að síður. Mælti tví- burabróðir: „Hver veit nema þetta sé tilberi frá Þórði vonda í skreið- inni?“ Mælti tvíburabróðir: „Ætl- aður til að koma frystihúsum á hausinn einu af öðru.“ Mælti tví- burabróðir: „Og steypa undan sjáv-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.