Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1971, Blaðsíða 20

Eimreiðin - 01.09.1971, Blaðsíða 20
84 EIMREIÐIN þess svo fágæt að einungis örfáum íslenzkum skáldum frá öndverðu til þessa dags hefur auðnazt að vinna sambærilegra sigra. Það þótti mikið tæknilegt afrek, þegar flugvísindamönnum tókst að rjúfa hljóðmúrinn, það er að segja knýja flugdreka sína liraðar um geiminn en sem nam hraða hljóðsins. — fslenzku skáldi hygg ég þó að sé jafn mikil þraut að rjúfa tungumálamúrinn, sem umlykur okkur. Þetta tókst þó Kristmanni Guðmundssyni á unga aldri svo rækilega, að enn hefur öðrum naumast orðið jafnmikið ágengt, hvað þá meira. Ég hef það fyrir satt að skáldverk Kristmanns finnist á rúml'ega 30 tungumálum, þeirra á rneðal tungum, svo framandi okkur, að ekki þekkjum við einn bókstaf í ritmáli þeirra, því síður orð. Kristmann er fæddur á Þverfelli í Lundareykjadal, 23. okt. 1901, hjá Birni Sveinbjörnssyni móðurafa sínum, þeim góða bónda, sem eftir and- lát sitt g'erðist eins konar þjóðsagnahetja og samnefnari hins fátæka, en ódrepandi íslenzka alþýðumanns, konungsins tötraklædda, sem skáldið Jón Magnússon kvað urn ljóðaflokkinn „Björn á Reyðarfelli.“ Krist- mann gerir hlut þessa fóstra síns og afa einnig harla góðan í fyrsta bindi sjálfsævisögu sinnar „ísold hinni svörtu“. Foreldrar Kristmanns Guð- mundssonar voru Sigríður dóttir Björns á Þverfelli og Guðmundur Jónsson frá Helgastöðum. Sjö ára að aldri fluttist Kristmann vestur á Snæfellsnes, að Fáskrúðar- bakka í Miklalioltshreppi og átti þar heima sex sumur. Hann fór tæpra þrettán ára á Hvítárbakkaskólann, þaðan austur á Firði að finna móður sína, sem þar var búsett. Austur á Fjörðum starfaði hann á landi og sjó, þar á meðal í verzlun. Veturinn 1918—19 fluttist Kristmann til Reykja- víkur og tók að fást við verzlunarstörf þar. Hann gekk með tæringu um þessar mundir, veiktist svo að liann varð að fara á Vífilstaðahælið. Hann dvaldi þar einn vetur og fékk bata. Þetta var veturinn 1920—21. Árið eftir gaf hann út frumsamið ljóðasafn, sem hann nefndi Rökkursöngva. í bókinni birtist þetta ljóð eða brot af Ijóði rneðal annarra: „Ég er að lialda á hafið auða. Heyra vil ég bylgjur gnauða, leika mér að lífi og dauða, langar að sjá hvor sterkari er. Gaman að heyra hvernig fer! Upp með seglið! Ekki rifa! Ekkert skal ég kjölnum bifa duggunni, sem liinn djarfa ber.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.