Eimreiðin - 01.01.1972, Síða 5
ÉIMREIÐIN
Einstaklingshyggjan og
samtíminn
Með þessu blaði kemur út 78. árgangur Eimreiðarinnar. Fá blöð á ís-
landi geta státað af svo háum aldri. Eimreiðin var á sínum tíma eitt víð-
lesnasta tímarit landsins. Liggja til þess vafalaust margar ástæður, en
harðfylgin og umdeild skrif blaðsins um íslenzk þjóðmál, íslenzkar listir
°g bókmenntir áttu stærstan hlut í velgengni þess á þeim tíma. Á seinni
arum hefur ritið einkum fjallað um bókmenntir og hefur lesendahópur
þess takmarkazt nokkuð við tiltölulega einhæft efni blaðsins.
Með nýrri ritstjórn er Eimreiðinni ætlað að færast nær uppruna sínum
Þ- e. fjalla um vísindi, þjóðmál, listir og bókmenntir.
Sá andi sem blaðinu er ætlað að fylgja kemur fram í þeirri fyrirsögn,
sem valin hefur verið, á viðtali Eimreiðarinnar við Jónas Haralz banka-
stjóra „Kjölfesta frjálshyggjunnar er trúin á manninn". Blaðinu er ætlað
að vera baráttutæki þeirra manna, sem hafa trúna á manninn og hans
beztu eiginleika að leiðarljósi og eru tilbúnir að halda þessari lífsskoðun
á lofti.
Sannleikurinn er sá, að við stöndum í dag frammi fyrir þeirri andstæðu,
sð innan velferðarþjóðfélagsins ber stöðugt meir á skerðingu einstaklings-
frelsisins, um leið og reynt er að staðla einstaklinginn. Vantrúin á getu og
skynsemi fjöldans, hinn almenna borgara, virðist vera sameiginleg með
þeim stjórnarstefnum, sem vitandi eða óafvitandi stefna að hinu staðlaða
Þjóðfélagi. Framtíðarþjóðfélag þeirra virðist eiga að búa við hópmenn-
mgu andlausra og kerfisbundinna einstaklinga, sem lúta vilja örfárra út-
valdra.
íslendingar eru að eðlisfari sjálfstæðir og dugmiklir einstaklingar.
Landið kenndi þeim að þeir fengju ekki neitt fyrir ekkert. Að gera meiri
krofur til sjálfs sín en til annarra. Frumforsendan fyrir tilvist þeirra í
Þessu harðbýla, en góða landi, er sá kraftur, þor og dugnaður, sem býr í
rjosti hvers íslendings. Leyndardóminn um velgengni þjóðarinnar var
Pvi ekki að finna í sívaxandi skrifstofubákni eða stöðugri fjölgun mis-
Jafnlega snjallra stjórnarherra, heldur í vinnugleði og framtaki hvers
einstaks borgara.
Þegar við viljum móta þjóðfélag framtíðarinnar, list þess og verkmenn-
mgu, verðum við að taka tillit til fjölbreytileika mannsins og reyna að
skapa frjótt og auðugt samfélag sjálfstæðra og skapandi einstaklinga. Við
mgum að stefna að þjóðfélagi sem gefur hverjum manni möguleika til að
proska sína beztu eiginleika og gefur honum tækifæri til þess að nýta þá
sjálfum sér og samborgurum til góðs.