Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Page 10

Eimreiðin - 01.01.1972, Page 10
EIMREIÐIN Ég held að meinið liggi í eðli sósíalismans sjálfs og að það sé óhjákvæmilegt, að sósíalísk þjóðfélög þróist eins og orðið hefur í Austur-Evrópu. Þetta stafar af þvi, að litið er á ríkisvaldið sem tæki, sem á að gera alla hluti. Það er álitið vera lykillinn að Paradís. Þetta viðhorf er öllum sósíalistum sameiginlegt, einnig sósíaldemókrötum, en kommúnistar álíta ennfremur, að þessu ríkisvaldi eigi einn stjórnmálaflokkur að stjórna. En þegar einu sinni er búið að bvggja upp flokkinn og ríkisvaldið, held ég að erfitt sé að snúa við og menn leiðist æ lengra út í foraðið. — Hvoru þjóðskipulaginu spáir þú sigri í baráttu þeirra? J.H.: Ég er ekki viss um, að það verði barátta. Það hefur átt sér stað barátta, en háðir aðilar virðast hafa áttað sig á því, hvað þeir geti komizt langt. Það gæti því gerzt hið sama og gerð- ist milli kaþólskra manna og mótmælenda á sínum tíma og múhameðstrúarmanna og kristinna, að baráttunni linni og það myndist eins konar landamæri, en það verður ekki samruni. Mótmælandi verður aldrei kaþólskur eða kaþólskur mólmæl- andi. En ég held, að æskilegast sé frá öllum sjónarmiðum, að sem eðlilegust viðskipti geti átt sér stað, bæði menningarleg við- skipti og verzlunarviðskipti. Engu að síður held ég, að það séu draumórar að trúa því, að þjóðfélög Austur-Evrópu muni í grundvallaratriðum breytast í fyrirsjáanlegri framtíð. Það væri barnaskapur að imynda sér slikt, og utanrikispólitik, sem byggð er á slíkum hugmyndum, er byggð á sandi. HVERT STEFNIR VELFERÐARRÍKIÐ ? — Þrátt fgrir vantrú á samruna stjórnkerfa hefur þú lýst úhyggjum yfir, að velferðarríki nútimans kunni að leiðast út á brautir, sem verði æ líkari því, sem tíðkast í Austur-Evrópu. Getur þú útskýrt þetta nánar? J.H.: Ég á fyrst og fremst við það, að á háþróunarstigi vel- ferðarrikisins muni gæta vaxandi rikisafskipta, bæði af atvinnu- lífi °g af einstaklingum og að þetta muni smám saman hafa víðtæk áhrif. Svo vikið sé að atvinnulífinu, þá er greinilegt, að í mörgum af þeim löndum, sem eru lengst á veg komin, er ríkið tekið að hafa vaxandi afskipti af atvinnufyrirtækjum. Það er farið að skipta sér af þvi, hvar atvinnufyrirtækin setja sig nið- ur, hvort þau fjárfesta eða ekki, hvort þau skila meiri eða minni ágóða. Þetta gengur svo langt i landi eins og Svíþjóð, að segja má, að framkvæmdavilji sé að verulegu leyti lamaður. Þeir, sem stjórna fyrirtækjunum hafa ekki lengur áhuga á að le£Sja út á nýjar brautir eða fjárfesta svo nokkru nemi. Þegar þannig er komið, segir ríkisvaldið: Atvinnulífið bregzt okkur,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.