Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Síða 12

Eimreiðin - 01.01.1972, Síða 12
EIMREIÐIN þróunin getur gerzt stig af stigi, en þetta getur einnig gerzt á öðrum sviðum. Hversu langt þetta muni ganga og hvort þessara auknu ríkisafskipta muni gæta á sviði tjáningarfrelsis, skal ég ekki segja um, en það eru ýmis ískyggileg teikn á lofli. UMHVERFISVANDAMÁLIN OG SÉRFRÆÐINGARNIR — Þú hefur lýst þeirri skoðun þinni, að áframhaldandi hag- vöxtur sé nauðsynleg forsenda þess, að unnt verði á friðsam- legan hátt að snua sér að öðrum þjóðfélagsmarkmiðum, svo sem umhverfisvernd. Umhverfisverndarmenn eru flestir á algjörlega öndverðum meiði og álíta, að árangurs muni þá fyrst að vænta, þegar skrúfað verði fyrir hagvöxtinn. J.H.: Ég held, að þetta sé algjör misskilningur lijá þeim. Ann- að mál er það, að ef við reiknum hagvöxt langt fram í tímann, þá komumst við vitanlega að alls konar niðurstöðum, sem eru fjarstæðukenndar. Ég býst auðvitað alls ekki við því, að hag- vöxtur, eins og við þekkjum liann, muni halda áfram um aldur og ævi. Það verður eflaust einhver mikil breyting, sem erfitt er að segja fyrir um. En ef við takmörkum okkur við næstu tvo til þrjá áratugina, þá lield ég, að óhjákvæmilegt sé að stefna að áframhaldandi hagvexti. Það er einmitt með aðstoð tækni- framfara og hagvaxtar, sem við getum unnið bug á umhverfis- vandamálum, enda hefur sýnt sig, að aðlögunarliæfni hagkerf- isins og þjóðfélagsins að svona vandamálum er mjög mikil. Ef við lítum aftur í tímann og athugum livaða vandamál menn töldu vera óviðráðanleg fyrir einum, tveimur eða fleiri áratug- um, þá komumst við að raun um, að þessi vandamál eru nú úr sögunni. Brezka blaðið The Economist, sem mikið hefur skrif- að um þessi mál, nefnir gjarnan það dæmi, að aðalumhverfis- vandamálið í New York um aldamótin síðustu hafi verið hrossa- tað. Ef einhver nútíma umliverfisfræðingur hefði sett sig niður í New York um aldamótin og tekið til að reikna út framtíð borg- arinnar, hefði hann komizt að þeirri niðurstöðu, að New York yrði komin á bólakaf í hrossataði kringum 1950. Þetta hefði líka sjálfsagt orðið, ef ekki hefði ox-ðið meiri háttar tæknileg hreyting, sem gerði hrossin óþörf og þessi breyting var auð- vitað bifreiðin. Hún var á sínum tima lausn á alvarlegu um- hverfisvandamáli, en er nú talin höfuð-mengunarvaldurinn. Að sjálfsögðu eru til lausnir á þvi vandamáli, eins og öðrum. — Telur þú, að það gæti verið til bóta að setja á laggirnar sérstakt umhverfisráðuneyti? J.H.: Guð sé oss næstur. Hugsið ykkur hættuna af þröngsýni 12
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.