Eimreiðin - 01.01.1972, Page 31
ÞORSTEINN
PÁLSSON
EIMREIÐIN
Hver er
sinnar
gæfu smiður
Einstaklingsfrelsið, spurningin um félagslegt frelsi og vald
Þjóðfélagsins yfir einstaklingunum hefur um langan aldur verið
einn meginásteytingarsteinn í allri þjóðfélagsumræðu. Ólíkar
hugmyndir manna um takmörk ríkisvaldsins og víðfeðmi og
eðli einstaklingsfrelsisins eru og hafa verið undirrót margvís-
legra þjóðfélagsátaka.
Við búum á þvi menningarsvæði, þar sem einstaklingarnir
hafa notið hvað mesls sjálfsforræðis samhliða vaxandi þjóð-
iélagslegu jafnrétti. Þegar grannt er skoðað, er þó líklegast, að
fæstir vilji í grundvallaratriðum varpa fyrir róða því, sem
aunnizt hefur í þessum efnum og gjörbreyta þjóðlífsmyndinni:
Auka vald ríkisins yfir einstaklingunum. Þó er það svo, að þær
raddir verða æ háværari, sem í orði kveðnu a. m. k. setja fram
kröfur um aukið ríkisvald, félagslega stjórn og skipulagshyggju
eins og það er nefnt. Oftast eru þessi hugtök þó óskilgreind og
Jafnvel sett fram án nokkurrar íhugunar um efni þeirra og inn-
tak. Svo virðist sem í mörgum tilvikum geri menn sér ekki
Ijósa grein fyrir eðli þessara liugtaka; og e. t. v. er mönnum
ekki Ijóst, hverl þeir stefna með þessi hugtök að leiðarljósi.
31