Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Page 34

Eimreiðin - 01.01.1972, Page 34
EIMREIÐIN inu er sniðinn liverju sinni. Um langan aldur hafa menn að vísu skilgreint huglakið lýðræði með ýmsum liætti og greint það í sundur. Við getum auðveldlega fallizt á þá skýringu á stjórnar- farslegu lýðræði, að það feli í sér, að sem flestir stjórni sem mestu um málefni þjóðfélagsins. (Shr. Þór Villijálmsson, pró- fessor; Lýðræði og ábyrgð fólksins; ritið Heimdallur 40 ára, Reykjavik, febrúar 1967). Menn verða þó að liafa í liuga, að lýðræðið er ýmsum takmörkum undirorpið. Lýðræði táknar ekki ólieft frelsi. Þannig liefur t. a. m. Tomas Mann selt fram þessa skilgreiningu á hugtakinu lýðræði: „Skip- un mannanna á málunx frelsis og jafnréttis, sættirnar um gildi einstaklingsins og kröfur þjóðfélagsins, nefnast lýðræði.“ (Tom- as Mann: Sigurinn eftir striðið; tímaritið Helgafell, Reykjavik, júni/ágúst 1942). Kjarni málsins er sá, að þeir, sem aðhyllast lýðræði, viðurkenna ekki takmarkalaust frelsi einstaklinga; öll- um athöfnum manna verður að setja ákveðin lakmörk i þi-osk- uðu þjóðfélagi. Einstaklingsfrelsi án takmarka leiðir ólijákvæmi- lega til stjórnleysis og upplausnar á sama liált og jafnræði get- ur verið vísir að liarðstjórn og undirokun. Vandinn, sem að okkur snýr er sá, að þessi tvö markmið, frelsið og jafnréttið, eru í innsta eðli sínu öndverð. Segja má, að sættirnar milli þessara gagnstæðu keppikefla séu í raun rétlri eins konar undirstaða eða forsenda þess, að sem flestir geti stjórnað sem mestu. En samtímis setja þessar sættir lýð- ræðinu ákveðnar skorðui’, takmarka einstaklingsfrelsið. Þeir, senx aðliyllast einslaklingshyggju líta á það sem verkefni sitt að ráða fram úr vandamálum frelsisins með því að stuðla um leið að ákveðnu jafnvægi í þessum efnum. Hinir, sem eru á önd- verðum meiði, ætla að leysa þjóðfélagsmálin með því að draga úr athafnafrelsi fólksins, ef mark er takandi á þeim hugtök- um og kröfum, sem mest er í lízku að lialda á lofti í stjórnmála- umræðum nú um stundir. Þó að einstaklingsfrelsi og jafnrétti séu andstæð liugtök, er eigi að síður unnt að vefa þau saman í einn vef. Með öðrum orðum: Það er unnt að fara hinn gullna meðalveg sáttanna, þar sem athafnafrelsi fólksins er uiipistaðan i þeim vef, er mynd- ar þjóðfélagið. Guðmundur Finnbogason segir um þetta í Stjórnarbót: „Lif þjóðar verður þvi frjórra og öflugra sem einstaklingarnir liafa meira frjálsræði til að lifa lifi sínu hver eftir sínu höfði, innan þeirra vébanda, sem réttur annarra til liins sama setur.“ (Guðmundur Finnbogason: Stjórnarbót; Reykjavík, 1924). En veruleg skerðing á einstaklingsfrelsinu getur leitt til and- 34

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.