Eimreiðin - 01.01.1972, Qupperneq 42
EIMREIÐIN
INDRIÐI G. ÞORSTEINSSON,
RITHÖFUNDUR
Loftungur fjölmiðlanna
(Úrdráttur úr erindi,
sem flutt var á fundi Félags íslenzkra rithöfunda
15. febrúar síðastliðinn)
Það hefur löngum verið lenzka i félagsskap eins og þessum
að forðast allar flokkanir um góðar eða vondar bókmenntir.
Félagsmenn hafa sjálfsagt sinar skoðanir, eins og aðrir, um gott
og vont í þessum efnum, en það hefur ekki verið talið við hæfi
að flíka slíkum skoðunum svo mjög á félagslegum grundvelli.
Það er því utan þessa félags, sem stríðið útaf ýmiss konar mein-
ingarmun er háð. Það sakar þó ekki öðru hverju að ræða slík
utanhúss mál, m. a. til þess að átta sig á því, við hverju er að
búast hverju sinni og livar vinir eru í varpa.
Opinberlega kemur meiningarmunur í bókmenntum einkum
fram i fjölmiðlum, eins og blöðum og útvarpi. Þegar ríkisút-
varpið hóf göngu sína, fyrir einum fjörutiu og þremur árum,
var það að öðrum þræði lyftistöng fyrir bókmenntirnar. Sem
fjölmiðill var það mikið frávik frá þeim blöðum, sem þá voru
í landinu, og önnuðust það, sem mætti kalla skoðanamyndun
eða upplýsingar, ef menn vilja hafa það svo. Sem andsvar við
einhliða upplýsingum hlaða, sem ástunduðu þjónustu sína inn
á við, það er við flokk og flokksfylgjendur, var setið yfir því, að
útvarp yrði hlutlaus stofnun, og þá auðvitað í bókmenntum
42