Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Page 44

Eimreiðin - 01.01.1972, Page 44
EIMREIÐIN manna stofnunarinnar. En slarfsmenn lialda sig án efa fast við gamla hlutleysisstefnu. Að minnsta kosti verða þeim ekki hér gerðar upp sakir. Þótt listin sé yfirleitt ekki opinberlega á liinni pólitísku dag- skrá, þá þykir stjórnmálasamtökum ætið nokkur hind í því að telja einstaka listamenn í sinum hópi. Hins vegar er það vani stjórnmálaflokka að fjalla nær eingöngu um kennslumál undir þeim lið er þeir nefna menningarmál. Menningin er því enn sem fyrr háð veðri og vindum í þjóðfélaginu, að því er til lista tekur, eins konar almenningur og fuglabjarg, þar sem ungir ljölva gömlum, byltingarlið lemur á hinum borgaralega sinn- uðu; einstaklingar, sem hafa ákveðið um 10 ára aldurinn að verða alheimssöngvarar, heyja stríð við þjóðfélag, sem þeir álíta að haldi vörð um vanmat á þeim af einberum þráa sauð- kindarinnar. Út yfir tekur, þegar gróin hlutleysisstofnun, eins og útvarpið, velur til stjórnar á þáttum um listræn efni fólk, sem er fullt af stríðsmóral og vill heldur liöggva en hlífa þvi, sem ávallt hefur borizt illa af i stormum dagsins. 1 andrúmslofti, þar sem sanngirni og víðsýni er með takmark- aðasta móti, má segja að eðlilegt sé, að stofnanir eins og út- varp og sjónvarp eigi í vök að verjast í menningarlegu tilliti. Fer þá saman, að opnað hefur verið fyrir flóðgáttir hins óundir- húna og óyfirvegaða máls og þrætan leidd til öndvegis, þar sem mestu skiptir að menn hafi ljós. 44

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.