Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Side 45

Eimreiðin - 01.01.1972, Side 45
EIMREIÐIN Eðlilegt er að i þessum hópi, sem liér er staddur, sé fyrst og fremst rætt um þann hlut, sem bókmenntunum er búinn í sjón- varpi og útvarpi. Þótt undarlegt megi virðast — og stafar það kannski af áðurgetnu afskiptaleysi stjórnmálaflokka — í menn- ingarmálum — þá viðhalda blöðin í landinu ákveðinni sann- girni — til að geta þess, sem vel er gert — burtséð frá sjónarmið- um og skoðunum, sem fram kunna að koma í verkum höfunda. Þar búa menn yfirleitt að gamalli befð og virðingu fyrir góðum texta. 1 blöðum er getið um flestar bækur, sem koma út, og rit- dómar eru birtir daglega á meðan belzti útgáfutíminn stendur. Það mat, sem kemur fram í þessum ritdómum, er yfirleitt sann- gjarnt, þótt til þess að meta slíka sanngirni verði auðvitað að vera fyrir bendi nokkur þekking á þeim, sem skrifar ritdóm- inn, ef sá binn sami lýsir því ekki yfir strax í upphafi, að eigin- lega sé hann á móti öllu, sem böfundurinn skrifi, en þess eru dæmi. Þegar sjónvarpið byrjaði kom að nokkru fram sú andúð, sem fylgir misjöfnu bókaflóði fyrir hver jól. Sjónvarpsmenn ákváðu sem sagt að geta ekki um bækur. Nú liefur verið ráðin bót á þessu. Eiríkur Hreinn Finnbogason, borgarbókavörður, hefur verið fenginn til að geta nýrra bóka í sérstökum þætti. Það starf hefur hann rækt með ágætum. Þar sem hin gamla hlutleysisstefna beldur í liönd starfsfólks útvarps og sjónvarps, eins og í fréttaþáttum um bækur, hefur tekizt að skipa málum með sanngirni. En þessar stofnanir hafa auk frélta liaft uppi þá þjónustu við bókmenntirnar í landinu — og þó fyrst og fremst við hinn almenna hlustanda — að efnt hefur verið til sérstakra þátta í því skyni, væntanlega, að efla upplýsingu um bækur og menn. Ætla má að i bókmenntaþætti eins og þeim, sem fluttur er i sjónvarpinu í bland við annað efni um listir, sé hverju sinni tekið til meðferðar það helzta, sem gerist í bókmenntum. Auð- vitað gildir um þetta mat stjórnanda á því bvað er helzt, og víst er liægt að heyja rökræður uin slíkt langt fram á nóttina. Hitt dylst engum, ef dæmi er tekið frá þvi i vetur, að þeir, sem þekkja til þessara hluta, gela lesið ákveðin viðhorf stjórnandans út úr vali hans á viðfangsefnum. Maður býst ekki við að óreyndu að hleypidómar ráði, enda alls ekki trúlegt. Hitt er vist, að sjónar- mið tilfinningalegs eðlis geta ráðið um of. Slíkt er mannlegt, ef um væri að ræða kjósanda, sem hitaður hefur verið upp árum saman á einhliða trúarbragðafóðri, sem stjórnmál geta stund- Um orðið. En i þætti eins og þessum hlýtur fyrst og fremst að vera liöfðað til menntunar, eða til livers er liún, ef stundar- 45

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.