Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Síða 46

Eimreiðin - 01.01.1972, Síða 46
EIMREIÐIN glaðar kenniseiningar sitja í fyrirrúmi, eitthvað sem tímans þras feykir í burtu, svo menn verða kannski að frelsast tvisvar eða þrisvar á ævinni til að tolla í fyrirbærinu. En um það höfum við dæmi. Þótt á því hafi borið í spjalli um bókmenntir hjá sjónvarp- inu, að þátturinn sem slíkur gefur kannski meiri upplýsingar um stjórnandann en bókmenntirnar, þá eru dæmi frá bók- menntaþáttum útvarpsins skýrari á alla grein. Ákveðnir, ágætir höfundar eru skjallaðir með upphöfnum orðum, sem eiga ekk- ert skylt við forvitnilega eða upplýsandi umræðu. Og manni dettur jafnvel í liug, að þarna sé verið að fjalla um einhverja hókmenntalega munaðarleysingja, ef ekki kæmi til vitneskja um að allir þessir höfundar standa vel fyrir sinu. Auðvitað eiga höfundarnir ekki að gjalda þess, þótt svo slysalega takist til í bókmenntaþáttum, að þeir séu hlaðnir orðum og undrun yfir þvi „séniala“ í fari þeirra, og þeir eiga heldur elcki að gjalda þess út í frá þótt flestir þeirra tillieyri ákveðnum stjórnmála- flokki. Mér er ekki kunnugt um, hvernig svona heimilisböl verður til hjá útvarpinu. Auðvitað liggja þarna að baki ákveðnar forsend- ur stjórnmálalegs eðlis. En á meðan ekki er einn stjórnmála- flokkur við völd i landinu, ætti að vera óhætt að sussa á verstu dæmin, jafnvel þótt í því felist sú áliætta að hárin rísi á kettin- um. Annars kemur þetta heimilisböl fram með ýmsu móti, og minnisstætt er, þegar einliver barnatímastýran fór upp úr þurru að hvetja börnin til að taka óstinnt upp, ef foreldri ætlaði að siða það til. Heldur skyldi barnið berja móður sina. Þetta er kannski i þágu byltingarinnar? Sumar bækur eru skrifaðar í þágu byltingarinnar. Það er gert með ýmsu móti, stundum skrifa menn þannig meðvitað og boða eld og djöful fyrir horgarastéttina — þetta blíða kyn — sem alltaf er verið að taka af lífi óátalið einlivers staðar í heim- inum. Aðrir skrifa byltingabókmenntir ómeðvitað og átta sig ekki fyrr en þeir hafa verið uppgötvaðir. Þetta eru höfundar, sem skrifa um ýmsar nauðþurftir með afbrigðilegum stílbrögð- um. Allt slíkt er byltingunni fagnaðarefni á meðan það vekur upplausn og skapar deilur. Þegar þessum höfundum hefur ver- ið bent á, hvað þeir eru miklir byltingamenn, hætta þeir yfir- leitt eða snúa sér í föndur. Öllum þessum fyrirbærum verður að sýna sanngirni. Islenzkar bókmenntir — það gamla hús — geymir margar vistarverur. Þar er rúm fyrir alla, einnig þau skáld, sem hafa orðið byltingarskáld, þótt aldrei berðu þau móð- ur sina. Indriði G. Þorsteinsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.