Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Side 50

Eimreiðin - 01.01.1972, Side 50
EIMREIÐIN líka í kirkjunni, þar var nauðsynlegt að kunna nofn útsendara Satans. Nú hafa raunvísindin tekið við þessu hlutverki skil- greiningarinnar. Þegar fyrirbrigði í náttúrunni eða mannshug- anum eða þjóðfélaginu lieíur verið skilgreint er hálft verk unnið. Þegar maðurinn reynir að skilja sjálfan sig, viðbrögð sin, hegðun o. s. frv., reynir liann að skilgreina sjálfan sig. Sál- fræðin hefur starfað vel og dyggilega að því að skilgreina alls konar komplexa mannlífsins og félagsfræðin samlífsins. Með skilgreiningunni einni saman er oft algjör sigur á slíkum fyrir- hærum unninn. Raunvísindin reyna að skilgreina tilveruna. Jarðfræðingur- inn opnar klettinn og sýnir okkur inn i hann og um leið rekur liann huldufólkið úr liólunum og tröllin úr fjöllunum. Félags- fræðingurinn opnar samfélagið með sinum skilgreiningum og úthýsir alls kyns hindurvitnum og sálarflækjum samfélagsins. Þannig vinna visindin að því að skilja manninn. En það eru ekki aðeins þau, sem það gera. Listin stundar sitt skilgrein- ingarstarf en á annan hátt. Þegar veðurfræðingurinn lýsir vor- inu með hitastigi og milliböruin talar ljóðskáldið rómantískt um „litið barn, sem kemur gangandi eftir veginum með vorið í fanginu“. Kjarval opnar klettinn á annan hátt en jarðfræðing- urinn og sér m. a. huldufólkið og tröllin. Til þess að skyggn- ast inn i sjálfan sig gerði Rembrandt um tvö liundruð sjálfs- myndir, það mátti ekki minna vera, og nægði sjálfsagt ekki. — Þannig horfa listin og visindin hvor með sinu hugarfari á hin ýmsu fyrirbrigði mannlifsins og náttúrunnar. Vísindin skil- greina en listin túlkar. Listin fæst við að túlka og tjá manninn og heim hans, viðhrögð mannsins við umhverfinu og því, sem hærist innra með honum. Vegna þess að listin fæst við að tjá manninn er liún náma guðfræðinnar til skilnings á samtímanum. Á miðöldum var listin i þjónustu kirkjunnar með því að hún túlkaði kristna trú og lifið í ljósi liennar. Nú hregður liins vegar svo við, að listin fer að mestu fram utan kirkjunnar og þetta á oft við um verk, sem fjalla um kirkjulega hluti. Sem dæmi má nefna „Jeremía“ og „Sálmasinfóníu“ eftir Stravinsky, „Messu“ eftir Bernstein auk „Jesus Clirist Superstar“ og fjölda slíkra léttra verka með trúarlegum viðfangsefnum. I ljóðlislinni er ef til vill enn meiri gróska i trúarlegum viðfangsefnum en í öðrum greinum list- anna. Hér er ekki um að ræða sáhna eða „trúarljóð með nei- kvæðu formerki“ eins og mörg ljóð Steins Steinars eru oft 50

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.