Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Side 53

Eimreiðin - 01.01.1972, Side 53
ÉIMREIÐlN innar er aÖ gera manninn mannlegan, mennskan, svo að liann geti andað frjáls og glaður í sköpunarverkinu. Hér að framan er getið um listina sem eina þeirra leiða, sem guðfræðin fer til að átta sig á umhverfinu, þeim manni, sem liún er að fást við liverju sinni. Þessar leiðir eru miklu fleiri. Ein þeirra, sem ýmsir guðfræðingar gefa nú gaum að, á þessum timum aukins frítima, er leikir og skemmtanir manna. Samkomur þjóðarinnar, þjóðhátiðarsamkomur, sumarsamkom- ur, áramótasamkomur o. s. frv. segja mikið um andlega liðan mannsins. Á aldamótahátiðinni i Loðmundarfiirði fór fram bændaglima, þar sem tveir sterkustu bændurnir kusu sér lið. 1 þessari miklu glímu tóku allir þátt, sem vettlingi gátu valdið, og fengu útrás i leik. Iðnaðarþjóðfélög eru vélræn og alvarleg og hafa tilhneigingu — eins og allt umhverfi hefur — til þess að móta manninn i sömu mynd. Þegar verulega á að „lyfta sér upp“ kemur þetta sjúkdómseinkenni menningarinnar hvað átakanlegast í Ijós, algjört ráðleysi og getuleysi til þess að skemmta sér á fullnægjandi hátt. Hverju hefur sá glatað sem kann ekki lengur að leika sér? Þeirri spurningu er varpað fram til ihugunar, en það mun hins vegar vist, að sá maður er á leið með að glata mennsku sinni. Samfélag sem er í þeirri hættu, ætti að beita sér af alefli að þvi að snúa þeirri þróun við, en til þess þarf kraft, ef til vill einna helzt hvatningu og sannfæringu um að mennskan borgi sig. Hvaðan kemur sá kraftur, hvaða aðili i þjóðfélaginu getur hugsanlega miðlað þeim krafti „sem gefur mönnum lifið“ eins og Tolstoy sagði? Mikið veltur á, að þeirri spurningu sé rétt svarað. Islenzka kirkjan hefur vissulega leitazt við að vera far- vegur náðarinnar, boðskaparins um SHALOM og verið það af veikum mætti. Enda þótt kirkjan eigi sin sérstöku ítök í þjóð- inni þá eru þau samt sem áður þess eðlis, að liún á langt í land með að geta gegnt sínu hlutverki svo að um munaði, en það er önnur saga. 1 Davíðssálmum er þetta stutta vers: „Sá sem situr á himni hlær“. Ég hýst við, að þessi fullyrðing Daviðs konungs um Guð sem hlær, komi flestum íslenzkum kirkjugestum á óvart. Þeir sjá hann miklu frekar reiðast eða tárast, en Guð sem hlær er ekki tíður gestur í kirkjunni. Ef til vill hefur Davið séð Guð hlæja að því, hve mennirnir taka sjálfa sig hátíðlega, ef til vill vegna þess að hann er glaður eða finnst eitthvað fyndið. Hvað 53

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.