Eimreiðin - 01.01.1972, Page 71
EIMREIÐIN
alls ekki fátítt, að sáttatilraunir málflytjenda áður en mál koma
fyrir dóm beri ekki árangur vegna þess, að málflytjendurnir vita
ekki á því stigi, hvaða upplýsingar kunna að koma fram í yfir-
heyrslum. Eftir að yfirheyrslur hafa farið fram og önnur gögn
í málinu liggja fyrir, eiga þjálfaðir málflytjendur í langflestum
tilvikum að geta farið nærri um það, hver úrslit málsins verði
og komið á samningum milli aðilanna á þeim grundvelli.
Að vísu er æskilegast, að málum verði lokið sem fyrst eftir
að allra gagna hefur verið aflað. En það kæmi þó miklu siður
að sök, þótt málflutningur og dómsálagning drægist eitthvað
eftir lok gagnaöflunar heldur en dráttur á öflun gagnanna, sem
°ft getur reynzt örlagaríkur.
3. Málsmeðferðin verði gerð samfelldari. Mjög mikill tími fer
nú til spillis bæði hjá málflytjendum og dómurum vegna þess,
hve vinnan við hvert dómsmál er sundurslitin. Það er alls ekki