Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1972, Page 75

Eimreiðin - 01.01.1972, Page 75
EIMREIÐIN dómendur séu of fáir, a. m. k. miðað við núverandi fjölda dóms- mála. Að minni hyggju mun þó greiðari gangur málanna leiða til þess, að þeim fækki hlutfallslega frekar en hitt. Sérstaklega geri ég ráð fyrir, að þeim málum mundi fækka, sem eingöngu er farið í vegna möguleikans til misnotkunar á réttarkerfinu, svo sem í því skyni að fá frestað fullnægingu ótviræðrar skyldu. Þegar hafður er í huga seinagangur dómsmála og afleiðingar lians, má vera Ijóst, að farsælast er mönnum að leitast við að halda svo á sínum málum, að þeir jmrfi sem minnst að leita aðstoðar dómstóla. Komi upp ágreiningur við aðra, er oftast affarasælast að reyna að leysa hann sjálfur, ef mögulegt er, eftir atvikum með aðstoð lögfróðra manna. Þó að ómetanlegt öryggi sé i því að geta i neyðartilvikum leitað til dómstólanna, er það tvimælalaust hetra að geta sjálfur haft hönd í bagga um úrslit hagsmunamála sinna heldur en að eiga þau að verulegu levti undir áliti annarra manna, sem að auki eru misvitrir, eins og aðrir dauðlegir menn. f þessu efni á það því við, sem í flestum öðrum efnum, að sjálfs er höndin hollust.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.