Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Side 37
RAGNHILDUR BJARNADOTTIR
Tafla 1
Hvaða viðfangsefni kennarastarfsins eru erfið?
Eftir eins árs nám Eftir tveggja ára nám
1. Agi og stjórnun 30% 25%
2. Skipulag og framkvæmd kennslu 25% 45%
3. Vandamál og erfiðleikar sem tengjast einstökum nemendum 20% 11%
4. Foreldrasamstarf 10% 6%
5. Persónuleg viðfangsefni: Að vera ákveðinn, þolinmóður ... 25% 37%
Kennslufræðilegum svörum fjölgar, en það vekur enn athygli að mjög lítill hluti svar-
anna tengist námsgreinum grunnskólans. Svörum um persónuleg vandamál og
foreldrasamstarf fækkar. Svör nemanna verða ítarlegri, málsgreinarnar eru yfirleitt
lengri; það skýrir aftur að hluta til að algengara er að svörin lendi í tveimur flokkum,
til dæmis flokki 2 og flokki 5. Persónulegur blær verður sýnilegri í svörunum. Einnig
bendir þetta til þess að faglegt tungumál og jafnframt fagleg hugsun sé að breytast.
Svör nemanna hafa mörg einkenni ríkjandi umræðu og viðhorfa til kennslu eins og
eftirfarandi tilvitnanir bera með sér:
- Að vera með verkefni fyrir hvern einstakling fyrir sig, þ.e. t.d. einstak-
lingsnámskrá, virðist mjög erfitt og rosaleg vinna.
- Að fanga alla nemendur, þá líka sem eru slakir og líka þá sem eru ofurgóð-
ir, og gefa þá öllum það sem er við hæfi.
- Bekkjarstjórnun. Held að það sé mikil vinna að kynnast bekk og fá gott
andrúmsloft meðal allra.
Einstaklingsnámskrá og einstaklingsmiðað nám eru hugtök sem hafa verið áberandi
í umræðu um kennsluhætti sem leið til að ná til allra nemenda. Einnig er hugsanlegt
að umræða kennara um vaxandi agavandamál hafi haft áhrif á hugmyndir nemanna
um erfið viðfangsefni. Bekkjarstjórnun felst samkvæmt svörunum ekki bara í að
halda aga heldu líka í því að skapa vellíðan, sem vísar til ákveðinnar hugmynda-
fræði. Reynsla nemanna á vettvangi mótar viðhorf þeirra og einnig virðist ríkjandi
orðræða um menntun og kennslu móta hugmyndir þeirra um æskilega hæfni.
Af svörum nemanna um erfið viðfangsefni má ráða að til að ná árangri í kennslu
telji þeir sig einkum þurfa að ná tökum á:
• Hæfni til að skipuleggja og framkvæma það sem gera þarf í kennslustarfi, m.a.
skipuleggja kennslustundir þannig að allir læri. Þeir eru uppteknari af formi
kennslunnar en innihaldi, þ.e. kunnátta þeirra sjálfra í námsgreinum er ekki
áberandi áhyggjuefni.
• Persónulegum styrk. Persónulegur styrkur eða öryggi er veigamikill þáttur í því að
valda viðfangsefnum, ekki síst viðfangsefnum sem tengjast aga og stjórnun, sem
eru áhyggjuefni margra.
35