Uppeldi og menntun - 01.01.2004, Síða 120
NÁMSSTÍLL NOKKURRA FJARNEMENDA
Gagnagreining
Við greiningu gagna var beitt „sífeildri samanburðaraðferð" sem í upphafi var notuð
til að þróa eða uppgötva hugtök eða kenningu, en í henni felst að gögnin eru skoðuð
og borin saman meðan á rannsókninni stendur. Ný vitneskja er stöðugt borin saman
við þá vitneskju sem þegar hefur verið aflað (Bogdan og Biklen, 1992:164-177;
Silverman 2000:179).
Viðtöl og dagbækur voru afrituð og greind jafnóðum með aðstoð forritsins QSR
NVivo Nud*ist sem notað er til að vinna eigindlega úr textagögnum. Gögnin voru
lesin og leitast var við að finna orð, setningar, skoðanir, viðhorf, atburði o.fl. til að
lykla eftir (e. code). Með hjálp forritsins voru gögnin flokkuð (e. coding categories) og
greind í þemu (e. theme). Leitast var við að finna mynstur (e. pattern) með hliðsjón af
þeim þáttum sem rannsóknin beindist að (Bogdan og Biklen, 1992:166-167). Rann-
sóknarspurningarnar voru hafðar í huga við það verk. Námsaðferðir fjarnemenda
voru greindar í þemu og atriði lykluð, t.d. hvar, hvenær og hvernig fjarnemendur
stunduðu nám sitt. Á sama hátt var leitast við að greina tengsl námsstíls og fjarnáms
sem námsforms, viðhorf fjarnemenda til námsins og námsumhverfi fjarnemenda
með skilgreiningu Davids Kembers (1989) og kennslulíkan M. Allyson Macdonald
(2001) í huga.
Til að stuðla að trúverðugleika rannsóknarniðurstaðna var tvenns konar aðferðum
beitt við gagnaöflun. Auk þess voru þátttakendurnir beðnir að lesa yfir viðtölin og
dagbækurnar, svo og niðurstöður, greiningu og túlkanir rannsakanda. Það var gert til
að ganga úr skugga um að rétt hafi verið farið með staðreyndir og til að fá viðbrögð
frá viðmælendum við greiningu og túlkun.
NIÐURSTÖÐUR OG UMRÆÐA
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að áhugi og gott skipulag einkenna
námsstíl fjarnemenda. Nemendur kjósa að læra einir heima hjá sér. Þeir telja að fjar-
námsformið hafi m.a. aukið sjálfsstjórn þeirra og ábyrgð í námi. Nemendur telja þjón-
ustu skólans vera góða en að auka megi kennsluathafnir í fjarnámmu. Notkun upp-
lýsinga- og samskiptatækni í námi og kennslu við KHI er nauðsynleg. Tölvan er
einkum notuð sem námstæki, sem stuðningur, til samskipta, til að leita upplýsinga í
leitarvélum og gagnagrunnum og til umræðna á vefráðstefnum.
Hafa ber í huga þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar að þær byggjast á gögnum sem
aflað var með viðtölum við sex fjarnemendur sem stunduðu eða höfðu stundað nám
við KHÍ. Þrír nemendur héldu auk þess dagbók um nám sitt í tvær vikur. Viðmæl-
endur eru of fáir til að hægt sé að alhæfa um niðurstöðurnar. Þær geta aftur á móti
gefið vísbendingar um námsstíl og námsumhverfi og aðstæður fjarnemenda við KHÍ.
Hér á eftir eru dregnar saman helstu niðurstöður rannsóknarinnar og þær túlkað-
ar í ljósi kenninga og rannsókna.
118