Ægir - 01.08.1949, Side 4
138
Æ G I R
algerlega þegar um haustið 1948. Varð þá
nær engrar síldar vart i Faxaflóa og því
ekki um neina veiði að ræða, svo teljandi
væri. Voru það einkum sár vonbrigði eftir
hinn milda veiðibrest á sumarsíldveiðun-
um.
1. Útgerð og aflabrögð.
Tafla I gefur yfirlit yfir þátttöku í út-
gerðinni í hverjum mánuði ársins 1948.
Togurum þeim, sem voru gerðir út á ár-
inu, fjölgaði eftir því sem leið á árið, enda
bættust þá við jafnaðarlega hinir nýju
togarar. í lok ársins 1947 höfðu togar-
arnir sem gerðir voru út, orðið flestir 37,
en þegar snemma á árinu 1948 var tala
þeirra komin upp í 40 og varð mest í júlí-
mánuði 46. Eftir það fór að draga mjög
úr iitgerð hinna eldri skipa og þrátt fyrir
lilkomu nýju skipanna, fór togurunum
fækkandi, þegar leið á árið, og í desember
voru þeir ekki nema 40 að tölu, en þá var
31 hinna stóru skipa komið til landsins.
Tala skipverja á togurunum var eins og
árið áður jafnaðarlega um 30 menn á
hverju skipi, og var þvi heildartala skip-
veírjanna á öllum flotanum um og yfir
1300.
Línugufuskipin voru eins og að vanda
gerð út aðeins mjög takmarkaðan tíma á
árinu, eða einungis fyrstu tvo mánuðina,
4 þeirra meðan á síldveiðunum i Faxaflóa
stóð og aftur á síldveiðunum um sumarið.
Má heita, að nú orðið séu þessi skip alls
ekki gerð út, nema til síldveiða.
Flestir eru bátar þeir, sem taldir eru vfir
12 rúml., og var þátttaka þeirra í útgerð-
inni svipuð og verið hafði árið áður. Fram-
anaf vertíðartímabilinu voru milli 200 og
300 þeirra gerðir út, eða nær 300, og voru
margir þeirra við sildveiði í Faxaflóa, þar
sem hins vegar hefur áður tíðkazl að þeir
væru þá við þorskveiðar. Hæst var tala
þessara báta á vertíðinni 301 í maímán-
uði og var það svipuð tala og árið áður,
en flestir voru gerðir út um sildveiðarnar
í júlí og ágúst 328 og 329 að tölu. Hefur
það jafnan verið svo, að þá hefur tala þess-
ara báta orðið hæst. Um haustið og fram-
an af vetri 1947 var óvenju mikið um það,
að bátar af þessari stærð væru gerðir úl
vegna síldveiðanna, sem þá voru stund-
aðar bæði fyrir Vestfjörðum og síðar í