Ægir - 01.08.1949, Blaðsíða 20
154
Æ G I R
Tafla XI. Veiðiaðferðir stundaðar af fiskiskipum í Norðlendingafjórðungi
í hverjum mánuði 1948 og 1947.
Botnvörpu- veiði í is Þorskv. með Ióð og netum Dragnóta- veiði Sildveiði m. herpin. ísfisk- flutn. o.fl. Samtals 1948 Samtals 1947
Taia skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. rt O. H Í/i Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv.
Janúar 2 66 3 33 » » 19 286 » » 24 385 » »
I'ebrúar 3 77 25 133 )) » 19 286 » » 47 496 47 282
Marz 3 75 28 144 » » » » » » 31 219 52 337
April 12 135 63 240 1 8 » » » » 76 383 65 396
Maí 11 130 92 328 14 117 » » 3 25 120 600 90 515
Júni 15 166 60 153 » » » » 1 9 76 328 65 361
Júlí 2 64 38 104 2 6 55 791 » » 97 965 82 1016
Ágúst 2 64 29 89 3 10 52 804 » » 86 967 85 1029
September 2 64 53 171 4 16 45 690 » » 104 941 55 343
Október 2 64 80 321 8 37 » » 7 58 97 480 54 303
Nóvember 2 64 123 438 15 99 1 8 8 58 149 667 59 391
Desember 2 54 5 52 » » 1 10 » » 8 126 22 369
voru bátarnir 78 að tölu, en síðar á árinu,
cða í nóvember, komst tala þeirra upp i
103. Samanborið við árið áður er hér um
töluverða aukningu á útgerð opinna vél-
báta að ræða, en þá varð tala bátanna
aldrei hærri en 50 í maímánuði, en hins
vegar var útgerð þeirra tiltölulega lítil
seinni hluta ársins.
Um útgerð árabáta var ekki að ræða svo
teljandi væri.
Um heildarþátttöku í útgerð í Norð-
lendingafjórðungi er það að segja, að hún
varð allverulega meiri nú en hún liafði
verið árið áður. Átti þetta bæði við um
vorvertíðina, sumarið og haustvertíðina.
Um vorið var tala skipanna hæst 120 í mai-
mánuði, en hafði verið 90 á sama tíma ár-
ið áður, og þá einnig hæst. Um síldveið-
arnar var tala bátanna í júlí hæst 97, en
hafði verið mest 85 í ágústmánuði árið áð-
ur, og í nóvembermánuði voru gerðir út
159 bátar, en 59 árið áður. Gætti hér að
sjálfsögðu aðallega þeirrar aukningar, sem
varð á útgerð opnu vélbátanna.
Yfirlit yfir veiðiaðferðirnar, sem stund-
aðar voru í Norðlendingafjórðungi, er að
finna í töflu XI.
Botnvörpuveiðar í ís voru að sjálfsögðu
stundaðar af tog'urunum í fjórðungnum
allt árið, en auk þess voru nokkrir bátar,
sem stunduðu togveiðar um vorið, svo
sem verið hefur um nokkur undanfarin
ár. Mest varð þáttaka bátanna í júnimán-
uði, og voru þá 14 þeirra gerðir út á tog'-
veiðar, en árið áður höfðu þeir verið
flestir 24 í maimánuði. Bátarnir stunduðu
þessar veiðar þó aðeins frarn að síldveið-
um, en eklcert eftir það.
Langflestir bátanna stunduðu þorsk-
veiðar með lóð og netjum svo sem jafnan
áður, en fyrst framan af árinu varð þó til-
tölulega lítil þátttaka í þeim veiðum, með-
al annars vegna þess, að margir bátar voru
þá við sildveiðar við Faxaflóa og eins liitt,
að að jafnaði er ekki mikið um þorsk-
veiðar fyrst framan af árinu nórðanlands.
Þegar leið á vorið, fjölgaði bátunum mjög
og urðu flestir í maímáhuði 92 að tölu,
enda stendur þá vertíð sem hæst fyrir
Norðurlandi. Yfir síldveiðarnar fækkaði
bátunum aftur og voru aðeins 29 i ágúst-
mánuði, enda var þá þátttaka hinna minni
báta yfirleitt miklu minni eins og áður
getur, vegna þess hversu margir fara þá
til síldveiða, en erfitt er þá að fá mann-
skap á minni bátana til þorskveiða yfir
sumartímann. Um haustið var aftur all-
mikið um þorskveiðar og í nóvember