Ægir - 01.08.1949, Blaðsíða 71
Æ G I R
205
Ar Eyðing tundurdufla Sökkt Gerð övirk Samtals
1940 0 1 1
1941 271 158 429
1942 133 715 848
1943 7 121 128
1944 5 51 56
1945 10 5 15
1946 5 115 120
1947 6 132 138
1948 5 78 83
Samtals 442 1 376 1 818
Kostnaður við eyðingu duflanna hefur
orðið tiltölulega mikill vegna langra og
erfiðra ferðalaga, sem starfsmennirnir
hafa oft orðið að takast á hendur.
14. Skipstapar og slysfarir.
Á árinu var manntjón á sjó með minnsta
móti. Alls fórust af völdum sjóslysa 20
íslendingar og var það tveimur fleira en á
s. 1. ári, en það ár var eitt hið minnsta sjó-
slysaár, sem um getur hér við land. Skipt-
ust sjóslysin þannig, að 8 féllu útbyrðis i
rúmsjó, 4 drukknuðu eftir árekstur, 3
drukknuðu við land, en 5 dóu af slysförum
um borð i skipum.
Talið er að 4 íslenzk skip hafi farizt á
árinu, en mannbjörg varð af þeim öllum.
Var sámanlögð rúmleslatala skipanna 431.
Tvö skipa þessara brunnu í rúmsjó, eitt
sökk og eitt strandaði.
Af erlenduin skipum strönduðu þrjú
hér við land á árinu. Af skipum þessum
hjörguðust 28 manns, en 24 drukknuðu.
Var 11 manns bjargað fvrir atheina björg-
unarsveita Slysavarnafélags íslands, en 17
var bjargað yfir i b.v. Júli frá Hafnarfirði.
Leitað var aðstoðar Slysavarnafélagsins
45 sinnum á árinu viðvíkjandi bátum og
íólki, er þurfti á aðstoð að halda.
Heildarfiskafli í heiminum
sami og fyrir stríð.
Samkvæmt skýrslum frá fiskimáladeild
matvæla- og landbúnaðarstofnun samein-
uðu þjóðanna (FAO) mun aflamagn það,
sem kemur á land í öllum heiminum nú
vera svipað og var fyrir styrjöldina, en þá
var það um 16 800 000 smál.
Nokkur breyting hefur þó orðið innbyrðis
milli hinna meiriháttar fiskveiðiþjóða svo
sem eftirfarandi tölur sýna.
Fyrir styrjöldina 1948
% %
Japan 22 14,6
U. S. A. ... 11 12,2
U. S. S. R. . 9,3 9,3
Noregur .. . .... 5,6 8,7
Bretland .. . 6,4 6,4
Canada .... 3,3 5,7
Island 1,8 2,8
Auk þeirra landa, sem hér eru nefnd
vantar upplýsingar um eftirtalin lönd, sem
voru þýðingarmikil fiskveiðilönd l'yrir
styrjöldina, og var hluti þeirra af aflanum
sem hér segir: Kína 7,9%, Korea 6,3% og
Þýzkaland 4,3%.
Mest er áberandi hversu Noregur og ís-
land hafa aukið sinn hluta í aflamagninu.
Þrátt fyrir það, að Japan hafi goldið mikið
afhroð í styrjöldinni og ekki hvað síst á
sviði fiskveiðanna, heldur það enn foryst-
unni enda þólt hlutur þess hafi minnkað
alhnikið eða um þvi nær %.
Síldveiði bregst við Skotland.
Það hefur lönguin þótt vera svo, að sild-
veiðin gæti verið stopul og á það ekki að-
eins við hér við land, heldur alls staðar,
þar sem sú veiði er stunduð.
Við Skotland er sem kunnugt er miki!
síldveiði stunduð á sumrin og hefur svo
verið um langa liríð. Eru aflabrögð þar að
sjálfsögðu æði misjöfn frá ári til árs svo
Framhald á blaðsiðu 211.