Ægir - 01.08.1949, Blaðsíða 53
Æ G I R
187
Tafla XXXIII. Yfirlit yfir saltfiskbirgðir í landinu 31. des. 1948—1944, samkvæmt
talningu yfirfiskimatsmanna (talið í smál. miðað við fullverkaðan fisk).
selt var þangað frystur fislcur, söltuð síld,
síldarlýsi o. f 1., en á árinu 1948 voru
Rússar ekki fáanlegir til neinna samninga.
Fór ekki hjá því, að það ylli nokkr-
um erfiðleikum, sérstaklega með tilliti til
frysta fisksins, þar sem sala á honum
hefur verið nokkrum erfiðleikum háð með-
al annars vegna þess, hversu flest lönd í
Evrópu eru illa undir það búin að taka á
móti miklu magni af frystum fiski af
læknilegum ástæðum. Úr þessu rættist þó
miklu betur en á horfðist, vegna þess að
samningar tókust um verulegt magn af
frystum fiski til hernámssvæða vesturveld-
anna i Þýzkalandi, en sá samningur var
gerður við Efnahagssamvinnustjórnina í
Washington; og var fiskurinn greiddur í
dollurum. Við brezku samningana var höfð
sama 'aðferð og árið áður, að því leyti, að
frysti fislturinn var seldur í sambandi við
síldarolíuna og var visst hlutfall á milli
þessara tveggja afurða. Af þessu leiddi að
minna magn af freðfiski seldist til Bret-
lands á umsömdu verði, en gert hafði
verið ráð fyrir i samningunum, þar sem
sildveiðarnar brugðust og framleiðsla
síldarolíu og útflutningur varð miklu
minni en gert hafði verið ráð fyrir.
Heildarútflutningur islenzkra afurða á
árinu 1948 nam kr. 395 678 000.00, en þar
af voru sjávarafurðir kr. 369 768þOO.OO.
Er hér um að ræða mjög mikla aukningu
frá þvi sem verið hafði árið áður, en verð-
mæti sjávarafurðanna hafði þá verið rúm-
lega kr. 267 millj. Nemur aukningin þvi
rúml. 38%. Hluti sjávarafurðanna af
heildarútflutningi landsins hefur því num-
ið 93,4%. Var það nokkru meira en verið
hafði árið áður, en þá nam hann 91.9%.
Hefur hluti sjávarafurðanna i útfluningn-
um jafnaðarlega um mörg undanfarin ár
numið um og yfir 90%. Af sjávarafurð-
unum eru það tiltölulega fáir afurða-
flokkar, sem hafa inikla þýðingu í útflutn-
ingnum á árinu 1948 og þrjú undanfar-
andi ár.
1948 1947 1946 1945
% % % %
fsvárinn fiskur . . 24,4 16,0 25,5 42,8
I’reðfiskur 17,2 25,9 25,0 26,2
Síldárolía 20,1 19,4 11,0 5,6
Sildar- ogfiskimjöl 11,2 6,1 4,8 1,6
Lýsi 9,1 8,5 11,7 13,5
Saltfiskur 8,3 17,6 7,7 0,5
Saltsild 6,2 4,9 11,5 7,0
Samtals 96,5 98,4 97,2 97,2
Að undanteknu árinu 1947 hefui • ís-
varði fiskurinn um mörg undanfarin ár,
eða öll styrjaldarárin, verið þýðingarmesti
afurðaflokkurinn og var svo enn á árinu
1948 eða 24,4% af útflutningi sjávarafurð-
anna. Var hér um að ræða meira en 50%
aukningu frá árinu 1947. Næst í röðinni