Ægir - 01.08.1949, Blaðsíða 66
200
Æ G I R
rúml. brúttó, en árið áður 44 849. Hefur
viðbótin aðallega komið frá togurunum,
þar sem lítið hefur bætzl við af öðr-
um fiskiskipum. Togararnir eru nú taldir
49 eða 12 fleiri en árið áður og rúmlesta-
tala þeirra 26 663, og hefur hún aukizt um
þvi nær 46% á árinu, en á tveim árum
hefur rúmlestatala togaraflotans meir en
þrefaldast. í árslok 1948 voru flestir hinna
nýju togara komnir, en von var á hinum
síðuslu fyrri hluta ársins 1949. Hins vegar
var um liaustið 1948 enn samið um smíði
10 togara í viðbót í Bretlandi, og munu þeir
eiga að afliendast á árunum 1950 og
1951.
Eins og áður getur bættist lítið við af
öðrum fiskiskipum en togurum og var
rúmlestatala þeirra í árslok tæplega 27
þús. rúml. brúttó, en í árslok 1947 tæplega
26 600 rúml.
Það .gefur að skilja, að langsamlega
mestur hluti þeirra skipa, sem bættust við
skipastólinn á árinu, voru smíðuð utan-
lands, en aðeins fá og hin smæstu þeirra
\oru smíðuð innanlands. Voru skipasmið-
ar með minnsta móti á þessu ári. Lokið
var smíði aðeins 3 báta á árinu og var
það 14 færri en verið hafði árið 1947, en
samanlögð rúmlesta tala þeirra var 111
samanborið við 1 034 rúrnl. á árinu 1947.
Voru bátar þessir smíðaðir á eftirtöldum
stöðum: Akureyri 2 bátar 74 rúml. og Siglu-
i'irði 1 bátur 37 rúml. Var hér um að ræða
báta, sem smíðaðir voru á vegum ríkissjóðs.
Voru við árslok enn eftir nokkrir bátar
af þeim, sem ríkissjóður samdi um á ár-
inu 1945, en gerl var ráð fyrir þvi, að þeim
yrði öllum fljótlega ráðstafað, enda lokið
við smíði þeirra fyrir alllöngu.
Til landsins voru keypt á árinu 21 skip,
samtals 21 859 rúml., og voru þau frá
eftirtöldum löndum:
Tafla XXXVIII. Skipastóllinn í árslok 1948 og 1947.
Eimskip Mótorskip Samtals 1948 Samtals 1947
Tala Rúml. brúttó Tala Rúmi. brúttó Tala Rúml. brúttó Tala Rúml. brúttó
Botnvörpuskip 49 26 663 » » 49 26 663 37 18 268
Önnur fiskiskip 11 2 583 632 24 330 643 26 913 669 26 581
Farþegaskip 3 3 601 4 3 185 7 6 786 6 6 330
Vörutlutningaskip 4 8 606 12 12 183 16 20 789 12 8 594
Ferjur » )) 2 502 2 502 2 502
Varðskip )) » 2 579 2 579 2 579
Björgunarskip » » 1 98 1 98 1 64
Sjómælingaskip » » 1 33 1 33 1 33
Dýpkunarskip 1 286 » » 1 286 1 286
Dráttarskip 1 111 » » 1 111 1 111
Samtals 1948 69 41 850 654 40 910 723 82 760 » »
Samials 1947 57 28 844 675 31 494 » » 732 60 348