Ægir

Årgang

Ægir - 01.08.1949, Side 32

Ægir - 01.08.1949, Side 32
166 Æ G I R stað 600 áður, og auk þess var byggð ný sildarverksmiðja í Hafnarfirði með 3 500 mála afköstum og' loks síldarverksmiðjan á Iíletti í Reykjavík með 5 000 mála af- köstum, að því áætlað er. Loks var svo keypt til landsins um haustið 1948 skip, sem breytt hafði verið í verksmiðjuskip og vélar settar í það til vinnslu á síld. Var hér um að ræða algera nýjung í islenzkum sildariðnaði, þar sem aldrei áður hafði verið notað verksmiðjuskip, en verksmiðj- urnar jafnan hafðar á landi. Því miður brást veiðin svo um veturinn, að reynsla fékkst ekki á því, hversu gefast muni að hafa þessa aðferð við vinnsluna, og er þvi ekki enn unnt um það að segja, hversu það muni gefast. Aætluð aflcöst þessarar verlc- smiðju eru 6 000 mál. G,efist þessi tilraun vel, hefur hin fljótandi verksmiðja að sjálfsögðu þann kost fram yfir þær, sem landfastar eru, að unnt er með tiltölulega litilli fyrirhöfn að flytja verksmiðjuna til hvert á land sem er, þar sem unnt er að koma því við að hafa skipið við land og' ætti því að vera auðveldara en áður að elta sildina, ef hún skyldi taka upp á því að færa sig til eins og reyndin hefur á orðið undanfarin ár. Samanlögð afköst síldarverksmiðjanna i landinu voru því við árslok 97 850 mál á sólarhring, og samsvarar það tæplega 1/s aukningu á afköstum frá þvi, sem verið hafði árið áður. Allar hinar 14 verksmiðjur, sem taldar eru á Norður- og Norð-Austurlandi, voru starfræktar yfir sumarið. Vegna hins mikla aflabrests á sumarsíldveiðunum fengu síldarverksmiðjurnar aðeins 444 718 hektol. af síld á móti 1 249 539 hektol. ár- ið 1947. Nam því magnið aðeins tæplega 36% af því, sem verið hafði árið áður. Var þetla að sjálfsögðu mjög bagalegt fyrir verksmiðjurnar, þar sem aðeins nýttisl lítið brot af afkastagetu þeirra. Undanfarin ár hefur rúmlega helmingur af síldarmagninu að jafnaði farið til Síldarverksmiðja rikisins og var svo einn- ig að þessu sinni, en þó meira en verið Tafla XVI. Áætluð afköst síldarverksmiðj- anna 1948 (mál á sólarhring). 1. Ingólfur h.f., Ingólfsfirði ................ 6000 2. Djúpavík h.f., Reykjarfirði ................ 6000 3. S. R. S., Skagaströnd.................. 6000 4. S. R. P„ Siglufirði ........................ 4000 5. S. R. N„ Siglufirði ........................ 5000 6. S. R. 30, Siglufirði ....................... 5500 7. S. R. 46, Siglufirði ....................... 9000 8. Rauðka, sildarverksm. Siglufj.kaupst. . . 10000 9. Dagverðareyri, Dagverðareyri ............... 6000 10. Hjalteyri, líveldúlfur h.f. Hjalteyri .... 10000 11. Krossanes, Itrossanesi .................... 3500 12. S. R„ Húsavík .............................. 350 13. S. R„ Raufarhöfn .......................... 5000 14. Síldarbræðslan h.f„ Seyðisíirði ............ 900 15. Fiskimjöl, Njarðvik ........................ 900 16. Fiskiðjan, Keilavik ....................... 1000 17. Lýsi og mjöl h.f„ Hafnarfirði ............. 3500 18. Síldar-og fiskimjölsv.sm. Kletti, Reykjavik 5000 19. Hæringur h.f„ Reykjavik ................... 6000 20. Sildar- og fiskimjölsv. Akraness, Akranesi 3000 21. Grótti h.f., Vatneyri ...................... 750 22. Fiskmjölsverksmiðjan, Bildudal ............. 450 Samtals 97850 Tafla XVII. Síldarmóttaka verksmiðjanna 1948—1947. (Sumarsildveiði norðanlands). Samtals Samtals 1948 1947 hl lil 11.f. Ingólfur, Ingólfsfirði 14 043 42 933 Djúpavík h.f„ Djúpuvík 26 383 66 563 S. R„ Skagaströnd 23 096 33 695 .<-.R.30,S.R.P„S.R.N.ogS.R.46, Siglf. 114 313 454 726 Rauðka, Siglufj.kaupst., Siglufirði 35 321 118 965 H.f. Kveldúlfur, Hjaltej'ri 54 248 169 035 Sildarverksm. h.f„ Dagverðareyri 32 595 97 914 Sildarverksm. Ak.kpst., Krossanesi 20 457 65 288 S. R„ Húsavík 11 400 172 983 S. R. R„ Raufarliöfn 112 539 7 373 Síldarbræðslan h.f„ Seyðisflrði . . 3 323 20 064 Samtals 447 718 1 249 539 hefur, eða rúmlega 58%. Raufarhöfn fékk tiltölulega mest af síld af öllum verksmiðj- unum eða tæplega % hluta af þvi, sem Síldarverksmiðjur ríkisins fengu. Kernur þar mjög greinilega fram, hver áhrif það hafði, að síldin var yfirleilt austarlega á veiðisvæðinu, eins og áður hefur verið getið. Verð á bræðslusíld hækkaði enn á ár-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.