Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1949, Síða 45

Ægir - 01.08.1949, Síða 45
Æ G I R 179 áður getur töluvert lægra, eða yfir allt ár- ið kr. 0.97 pr. kg, sem er 22 aurum lægra en það var í Bretlandi. Hélzt meðalverðið yfirleitt mjög svipað allan tímann eða jafnaðarlega rétt um kr. 1.00. Þó var frá þessu undantekning, aðallega í júlímán- uði, þegar verðið var aðeins kr. 0.91, sem stafaði af því, að þá varð allmikill fiskur ónýtur og ósöluhæfur en það lækkaði að sjálfsögðu mjög mikið verðið. Hæst varð meðalverðið í april og maí kr. 1.02, en lægst eins og áður segir í júlimánuði. Mismunurinn á hinu þýzka og brezka meðalverði er þó ekki svo mikill eins og' virzt gæti eftir þessum tölum, þar sem kostnaðurinn við það að koma fiskinum í land er töluvert mikið minni í Þýzkalandi heldur en í Bretlandi, auk þess sem í Þýzkalandi þarf engan toll að greiða, en eins og kunnugt er, er tollurinn i Bretlandi 10% af söluandvirði fisksins. 5. Hraðfrysting. Hraðfrystihúsunum fjölgaði enn þá á árinu og var talið, að í árslok hafi þau verið 84 að tölu, eða 8 fleiri en í árslok 1947. Nokkur þessara húsa, eða 6 talsins, voru þó alls ekki starfrækt til frystingar á fiski á árinu, svo að alls störfuðu 78 frystihús. Mun ekki vera fjarri að afkasta- geta þessara húsa hafi verið í lok ársins um 800 smál. af flökum miðað við 16 tíma vinnu. í árslok 1947 var afkastageta frystihúsanna um 700 smál. Fiskur sá, sem fór lil frystihúsanna til vinnslu, var að þessu sinni 76 293 smál. (samanber töflu XXVI). Var liér um að ræða aukningu, sem nam rúml. 5 000 smál. miðað við það, sem verið hafði árið 1947, og hafa frystihúsin aldrei tekið á móti jafnmiklu af fiski eins og á þessu ári. Samsetning þess afla, sem fór til frysti- húsanna, breyttist ekki mikið á árinu frá því, sem verið hafði árið áður, og var þorskurinn að sjálfsögðu með stærstan hluta, eða um 79% á móti rúmlega 80% árið 1947. Hins vegar jókst heldur hluti ýsunnar og flatfisksins, og var ýsan með 7,7% og flatfiskurinn, allar tegundir, með 4,7%. Langsamlega mest af flatfiskinum var skarkoli, þar næst kom þykkvalúran. Hafði hluti ýsunnar árið áður verið 7,3%, en flatfiskanna 4,5%. Mest varð breyting- in á steinbítsmagninu, en það jókst hlut- fallslega um nær helming og varð nú 6,1%. Var steinbítsveiði stunduð venju freinur mikið seinni hluta vetrar og um vorið, bæði fyrir austan og vestan land, en hins vegar var lítið um útflutning á fiski í ís að ræða og þess vegna ekki um annað að gera

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.