Ægir - 01.08.1949, Page 57
Æ G I R
191
nijög, sem raun er á og afkastageta hans
þó enn meira, en tala skipanna gefur hug-
mynd um, vegna tilkomu hinna nýju og
stóru togara. Það var þvi ekki neinum
vandkvæðum bundið að afla þessa magns,
sem hér var um að ræða, hins vegar var
það fyrirsjáanlegt, að markaðserfiðleikar
hefðu getað valdið hér miklum vandræð-
um, ef ekki hefði tekizt svo vel til, sem
áður hefur verið á drepið, að samningar
tókust við hernámsyfirvöld Vestur-Þýzka-
lands seint á árinu 1947 þess efnis, að
þangað yrði selt allt að 70 þús. smál. af
ísvörðum fiski á árinu 1948. Var þegar í
desember 1947 hafinn útflutningur á is-
varðri sild, sem nam milli 3 og 4 þús. smál.
og getið er annars staðar í yfirliti þessu,
en afg'angurinn var afgreiddur sein ísfisk-
ur á árinu 1948, og hófst útflutningurinn
siðast í apríl það ár. Þessi samningur
leiddi það af sér, að meira en helmingur af
öllum ísfiskinum, eða 64 300 smál. var
lluttur til Þýzkalands, en 61 100 smál. til
Bretlands, eða því sem næst sama magn og
þangað hafði verið flutt árið áður.
Enda þótt framleiðsla af frystum fiski
væri meiri á árinu 1948 en nokkru sinni
l’yrr, varð þó útflutningurinn heldur minni
en verið hafði árið áður, sem stafaði af
J)ví, að óvenjumiklar birgðir lágu í árslok
í landinu, sem ekki voru fluttar út fvrr en
komið var fram á árið 1949, enda Jiótt
megin hluti þess fisks væri þegar seldur.
Alls nam útflutningurinn 22 200 smál. á
móti 25 400 smál. árið áður.
Þess hefur áður verið getið, að samning-
ur var gerður við Bretland á árinu 1948 um
sölu á ýmsum sjávarafurðum Jiangað, og
var veigamesta atriðið í þeim samningi
sala á freðfiski, en Bretland hefur jafnað-
arlega um mörg ár, að árinu 1946 undan-
teknu, verið bezti markaðurinn fyrir fryst-
an fisk héðan. Veiðibresturinn á síldveið-
unum hafði þau áhrif, að töluvert minna
at frystum fiski var selt til Bretlands með
hinu umsamda verði og varð síðan að gera
11111 það sérstakt samkomulag, þegar séð
var, að ekki var unnt að standa við samn-
inginn um sölu á síldarlýsinu. Þó var á
þessu ári flutt til Bretlands tæp 9 000 smál.
af frystum fiski, en hafði árið 1947 verið
rúmlega 9 000 smál. Þannig fóru nærri
40% af frysta fiskinum á brezka mark-
aðinn.
Eftir styrjöldina hefur Tjekkoslovakia
orðið allstór kaupandi að frystum fiski
héðan og var að þessu sinni flutt Jiangað
út 5 200 smál. Var það um 4 sinnum meira
en árið áður. Sömuleiðis hefur Holland á
tveim síðustu árum keypt allmikið af
frystum fiski, en þau viðskipti hófust, er
samningar voru gerðir við það land seinl
á árinu 1947. Alls var flutt út af frystum
fiski árið 1948 til Hollands 3 700 smál.
tæplega, og var Holland þriðja landið í röð-
inni, hvað magnið snertir. Þá kemur
Fraltkland með tæplega 2 300 smál., en
þangað var flutt út árið áður um 3 600
srnál., svo að magnið er nú nokkuð minna,
enda hafa verið þar ýmsir erfiðleikar á
sölu fisksins meðal annars vegna Jiess fjár-
málaástands, sem ríkti þar í landi. Á und-
anförnum árum hafa Bandaríkin jafnan
flutt inn nokkuð af íslenzkum freðfiski og
var svo enn á Jiessu ári, eða alls rúml.
1 900 smál. á móti tæpum 1 100 smál. árið
áður. Til annara landa var flult mjög lítið,
eða innan við 100 smál. af frystum fiski, en
mest varð þó breytingin að því er Rúss-
land snertir, en Jiangað hafði á árinu 1947
verið flutt 7 850 smál., en ekki neitt á ár-
inu 1948, enda eins og áður getur ekki um
neina samninga við það land að ræða á
því ári.
Af niðursoðnu fiskmeti var flutt út
meira á Jiessu ári en undanfarin ár, eða
um 960 smál. á móti 340 smál. árið áður.
Hér er þó raunverulega um mjög lítið
magn að ræða og gæti að sjálfsögðu verið
margfalt meira, ef framleitt væri eins mik-
ið af 'niðursuðuvörum í landinu eins og
þær verksmiðjur, sem nú eru fyrir hendi,
leyfa, Erfiðleikarnir á sölu þessarar fram-
leiðslu liafa hins vegar gert það að verk-
um, að framleiðslan hefur verið mjög lítil.
Hinn aukni útflutningur frá því, sem var