Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1979, Page 28

Ægir - 01.07.1979, Page 28
m.ö.o. aðferðina má nota við stjórnun veiða eins og ákvörðun veiðikvóta. Skilyrði til þess að svo megi vera, eru haldgóðar upplýsingar um stærðir þeirra árganga, sem eru væntanlegir í veiðina og forsendur um líklega sókn séu raunhæfar. Hafrannsóknastofnunin hefur gert árlega spá um þorskafla komandi árs síðan árið 1972 (tafla 2). Spárnar hafa byggzt á framreikningi stofnstærðar og sóknar með V.P.-greiningunni. Spárnar fyrir árin 1972-1975 birtust í riti Þjóðhagsstofnunar, Þjóðarbúskapurinn (Schopka 1972, 1973, 1975). Aflaspá fyrir árið 1976 birtist í hinni s.n. svörtu skýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar (Anon. 1975) og spá fyrir árið 1977 kom fram í greinargerð Hafrannsóknastofnunarinnar til sjávarútvegsráðu- neytisins um þorskstofninn við ísland í nóvember 1976. Spá ársins 1978 birtist svo í gráu skýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar (Anon. 1978). Eins og getið hefur verið að framan eru megin- forsendur spárinnar staðgóð þekking á þeim ár- göngum, sem eru að koma inn í veiðina og sókn komandi árs. Sóknin hefur í flestum tilvikum verið meira og minna óþekkt stærð og hefur sókn líðandi árs eða ársins á undan oftast nær verið höfð til viðmiðunar. Þegar spátímabilið er skoðað í heild má vel við una, frávik á áætluðum afla og raun- verulegum afla er í flestum tilvikum innan þolan- legra marka. Það er athyglisvert að árin 1973-1976 er raunverulegur afli alltaf hærri en spáður afli, en skýringin er sú, að sóknaraukning, sem ekki var séð fyrir um á hér mestan hlut að máli. í spánum árin 1973-1975 var ekki reiknað með aukningu heildarsóknar, þótt vitað væri um aukningu ís- lenzka fiskiskipastólsins, heldur var gert ráð fyrir, að vegna útfærslu fiskveiðilögsögunnar yrði sóknar- aukning íslendinga ekki meiri en sem næmi sóknar- minnkun erlendra þjóða á íslandsmiðum. Talsverð sóknaraukning varð þó á árunum 1973-1975. örlítið dró úr heildarsókn árið 1976, en hins vegar var afli um 2% meiri en spáin gerði ráð fyrir, sem á rætur sínar að rekja til þess að 1972 árgangurinn reyndist sterkari en seiðarannsóknir bentu til. I spánni fyrir árið 1977 var gert ráð fyrir sömu sókn og árið 1976. Spáð var að aflinn árið 1977 yrði á bilinu 330-360 þúsund tonn og færi það að mestu eftir því hver raunveruleg stærð 1973 árgangsins yrði. Afli 1977 féll innan áætlaðra marka. í spánni fyrir árið 1978 var gert ráð fyrir að með sömu sókn og árið 1977 myndi aflinn verða 350 þúsund lestir. Þrátt fyrir að sóknin árið 1978 færi fram úr áætlun varð aflinn minni, sem vart verður skýrt á annan hátt en að stofninn hafi verið rýrari en gert var ráð fyrir í spánni. Hér hefur verið rætt um spár aðeins eitt ár fram1 tímann. Sé spáð lengra fram á við eykst óna- kvæmnin, sérstaklega vegna þess að upplýsingar um árgangastyrkleika ungfisks eru af skornum skammti og ógjörningur er að segja fyrir um klak komandi ára. Þó er hægt að spá fyrir um þroun hrygningarstofns nokkur ár fram í tímann, þarsem þeir árgangar, sem standa að hrygningunni eru nokkur ár í veiðinni áður en þeir verða kynþroska- Heimildir: Anon., 1975: „Skýrsla Hafrannsóknastofnunarinnar um ástan fiskstofna og annarra dýrategunda á Islandsmiðum og nauð synlegar friðunaraðgerðir innan íslenzkrar fiskveiðilandhelg1 • Rvik 1975. fjölr. Anon., 1978: „Ástand nytjastofna á íslandsmiðum ogaflahorfm 1978“. Hafrannsóknir 13. 5-35. Fry, F.E.J., 1949: „Statistics of a lake trout fishery" BiometricS 5, 1. 27-67. Gulland, J.A., 1965: „Estimation of mortality rates. Annex 1C Artic Fisheries Working Group Report", ÍCES, C.M. 1^5- (3). Fjölr. Hensen, V. 1887: „Oberdie Bestimmung des Planktons oderde Meere treibenden Materials an Pflanzen und Tieren 5. Ber- Komm. Wiss. Unters.st. Meere, 12-16. Jones, R„ 1964: „Estimating Population size from commerc1 Statistics when Fishing Mortality Varies with Age“. Rapp. Proc.-Verb. Cons. perm. int. Explor. Mer. 155. - 210-214. Russel, E.S., 1931: „Some theoretical considerations on the overfishing problem". J. Cons. Inter. Explor, Mer., 6, 3- Schopka. S.A., 1972: „Þorskaflinn 1973“. Þjóðarbúskapuri1111- Framvindan 1972 og horfur 1973. 2, 55-56. - 1973: „Þorsk-, ýsu- og ufsaaflinn árið 1974“. Þjóðar búskapurinn. Framvindan 1973 og horfur 1974. 4, 81-83- - 1975: „Þorsk-, ýsu- og ufsaaflinn árið 1975“. Þjóðarbu skapurinn. Framvindan 1975 og yfirlit 1973-74. 5, 183-184- Guðmundur Guðmundsson, Seðlabanka Islands: Tölfræðileg V.P.- greining Ágrip af erindi flutt á ráðstefnu utn reiknilíkön á sviði fískifræði Fiskveiðidánarstuðlar metnir með V.P.- a^er.^ breytast meira frá ári til árs eða milli misgam3 fisks innan sama árs en skýrt verði með bre> 408 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.