Ægir - 01.07.1979, Blaðsíða 34
Svend-Aage Malmberg, haffræðingur:
Astand sjávar og fiskstofna
við Island
Greinaflokkur:
1. Ofveiði og hafstraumar
Inngangur
Ástand fiskstofna í hafinu við ísland er ofar-
lega i huga þessi misserin. Einstaka fiskstofnar
hafa líka alveg horfið af miðunum við landið eins
og norsk-íslenska síldin og íslenska vorgotssíldin,
en sumargotssíldinni var væntanlega forðað frá
sömu örlögum með friðunaraðgerðum í tæka tíð.
Aðrir fiskstofnar við ísland eru hætt komnir,
og þá sérstaklega þorskurinn, þessi meginstoð
íslensks atvinnulífs. Loðnustofninn er einnig talinn
vera í hættu. Ýmsir aðrir fiskstofnar eru taldir
fullnýttir eða þar um bil, eins og ýsa, ufsi og
steinbítur, en ekki fullnýttir eru taldir t.d. spærl-
ingur, grálúða, skarkoli, einnig karfi (umdeilt),
og svo kolmunni (1).
í greinaflokki þeim, sem hér hefst, verður reynt
að lýsa á aðgengilegan hátt hvernig náttúrulegar
ytri aðstœður geta haft áhrif á ástand fiskstofna
hér við land og á gönguleiðir þeirra. Greinarnar
fjalla einkum um síld, loðnu og þorsk, en e.t.v.
einnig um aðrar fisktegundir.
Ofveiði
Of mikilli sókn eða svonefndri ofveiði er oftas'
kennt um eyðingu fiskstofna. Ofveiði verður þó a
teljast vera mjög teygjanlegt hugtak.
Á ráðstefnu hjá Verkfræðingafélagi íslands (2)
sagði Jakob Jakobsson fiskifræðingur, að „gengdj
arlausar smásíldarveiðar hafi rekið smiðshöggió a
hrun sildarstofnsins“, þ.e. þess norsk-íslenska- En
Jakob segir einnig, að „þegar vel árar fyrir loðnU'
klak eins og t.d. á tímabilinu 1970-1975 vaf
loðnustofninn stór og veiðiþol hans öruggleSa
langt umfram þær veiðar, sem stundaðar voru
1972-1977. Hin síðari ár hefur viðkoman aðeins
verið þriðjungur þess sem áður var. Það er einku111
af þessum sökum sem nú er óttast að hinar stor
auknu veiðar verði stofninum ofviða“.
Til að leggja aukna áherslu á þessi umrnS
eru hér birt gögn um magn og dreifingu loðnu
seiða við ísland og Austur-Grænland á árunun1
1970-1978 (1. tafla (3,4,5,6)). Upplýsingar uj»
hitastig og seltu í sjónum fyrir norðan og nor
1. tafla. Hlutfallslegur fjöldi loðnuseiða í hafinu umhverfis ísland í ágúst 1970-1978. (3,4,5,6)-
Abundance estimates of O-group capelin in 109 Jish.
SV-Iand V-land Dohrnb. N-land A-land SA-land Alls
1970 ............................. 3 5 1 2 0 0 [11]
1971 .............................. 2 5 + 12 0 + [19]
1972 .............................. 4 33 + 52 + + 89
1973 ............................ 26 13 14 46 16 1 116
1974 .............................. + 44 26 57 7 0 134
1975 ............................. 5 32 3 46 3 0 89
1976 ............................. 1 4 1 39 12 3 60
1977 ............................ 3 16 2 19 3 + 43
1978 .............................. + 2 + 29 + + 31
414 — ÆGIR