Ægir - 01.07.1979, Blaðsíða 65
framangreindur línufiskur ísaður í kassa í veiði-
skipj greiðist 14% álag í stað 10%.
fERSKFISKMAT:
Um mat á fiski fer samkvæmt reglugerð nr. 55 frá
0- mars 1970 um eftirlit og mat á ferskum fiski o.fl.
vERÐUPPBÓT Á UFSA OG KARFA:
Með vísum til ákvæða laga nr. 69/1979 skal greiða
% uppbót á framangreint verð á ufsa og 30% uppbót
a fmmangreint verð á karfa að meðtöldum uppbótum
a kassaftsk og línufisk. Uppbót þessi greiðist úr Afla-
'fyggingasjóði og Tryggingasjóði fiskiskipa og annast
'sktfélag íslands greiðslurnar til útgerðaraðila eftir
reglum, sem Sjávarútvegsráðuneytið setur.
ÖNNUR ÁKVÆÐI:
við stærðarákvörðun skal mæla eftir miðlínu ftsks frá
rJonu um sýlingu á sporðblöðkuenda.
.11 verð miðast við að fiskur sé veginn íslaus og
jendur afhendi fiskinn aðgreindan eftir tegundum á
Hutningstæki við skipshlið.
Á það skal bent, að æskilegt er að áhafnir veiði-
‘Pa flokki sjálfar aflanna eftir stærð áður en hann
r afhentur til vinnslu verði slíkri vinnutilhögun við
komið.
Reykjavík, 9. júní 1979.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Bráðabirgðalög
í tengslum við fiskverð
* fengslum við ákvörðun fiskverðs voru gefin út
syohljóðandi bráðabirgðalög nr. 69/1979:
, ’.Egr-
■ gr. laga nr. 4 2. marz 1979 orðist svo:
afK 6^ar fiskiskiP seiur afla í innlendri höfn eða
j~r endir afla sinn til vinnslu án þess að sala fari
arn, skal fiskkaupandi eða fiskmóttakandi greiða
gerðarmanni eða útgerðarfyrirtæki olíugjald, er
t** 7% miðað við fiskverð eins og það er
• ,^e^ið af Verðlagsráði sjávarútvegsins. Hið sama
tii lr> þegar fiskiskip selur afla sinn öðru skipi
e, önciunar í innlendri höfn. Olíugjald þetta kemur
1 fil hlutaskipta eða aflaverðlauna.
2. gr.
Þrátt fyrir ákvæði laga um útflutningsgjald
nr. 5 13. febrúar 1976 sbr. lög nr. 3 2. marz 1979,
skal heimilt að verja 500 milljónum króna af
tekjum Tryggingasjóðs fiskiskipa og 700 milljónum
króna af tekjum Aflatryggingasjóðs af útflutnings-
gjaldi til þess að bæta upp verða á karfa og ufsa á
tímabilinu 15. maí 1979 til 31. desember 1979.
Fjárhæð þessarar uppbótar í hvert kílógramm af
framangreindum tegundum skal ákveðin innan fyrr
greindra marka af Verðlagsráði sjávarútvegsins
með fiskverðsákvörðun hverju sinni. Sjávarútvegs-
ráðuneytið setur nánari reglur um greiðslu þessarar
uppbótar og skal Fiskifélag íslands annast greiðsl-
urnar til útgerðaraðila. Uppbót á karfa- og ufsa-
verð skv. þessari grein skal koma til skipta og afla-
verðlauna eins og annað fiskverð.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og taka ákvæði
þeirra til afla á tímabilinu 15. maí til 31. des-
ember 1979.“
Hið nýja fiskverð gildir frá 1. júní, en hækkun
olíugjaldsins og verðuppbót á karfa og ufsa gildir
frá 15. mai.
í bréfi Sjávarútvegsráðuneytisins dags. 15. júnítil
Fiskifélags íslands segir svo um greiðslu á ufsa- og
karfauppbótinni:
,,Að fengnum vigtar- og vinnsluskýrslum frá
vinnslustöðvum, svo og öðrum upplýsingum, er
nauðsynlegar kunna að reynast, reiknar Fiski-
félagið mánaðarlega út uppbætur á karfa og ufsa
og sendir þær útgerðaraðilum. Fiskifélagið getur
falið vinnslustöðvum að taka að sér að koma
greiðslum til þeirra útgerðaraðila, er við þær
skipta hverju sinni, eftir því sem við verður
komið.“
Skýrslur Fiskifélags íslands fyrir maímánuð
munu vera miðaðar við að 15. maí fylgi fyrri
hluta mánaðarins og þurfa því þeir sem lögðu á
land afla þann dag, þ.e. 15. maí, að gera sér-
staka kröfu til Fiskifélags íslands fyrir ufsa- og
karfauppbót á afla, sem lagður var á land þann dag.
Við vekjum athygli á, að í fiskverðstilkynning-
unni er tekið fram, að ufsa- og karfauppbótin
greiðist á skiptaverð og þá einnig á línu- og
kassafiskuppbót, sé um þær að ræða.
Frá L.Í.Ú.
ÆGIR — 445