Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1979, Síða 35

Ægir - 01.07.1979, Síða 35
'■ ,a.fla. Frávik hitastigs og seltu á 25 m dýpi í „kalda" s.iánum norðaustur af Langanesi í júní 1969-1979. Frávikið er miðað vió meðaltal áranna 1950-1958. ánontalies of temperature and salinitv in June at .25 m ‘iepth from a study area northeast of Langanes (67 - 69° A', H - 15° W, reference period 1950-1958). 1969 Hiti°C <9st°C -2.74 Selta dSS°loo -0.38 1970 -0.22 -0.32 Pólsjór, 1971 -1.40 -0.28 S°/oo < 34.7 1972 0.34 -0.06 1973 1974 -1.29 -0.07 Svalsjór, -0.46 -0.12 S°, oo > 34.7 1975 -1.66 -0.05 1976 -0.28 -0.17 1977 -1.69 -0.33 1978 1979 -0.60 -0.16 Pólsjór, -1.60 -0.20 S°/oo < 34.7 Meðalt. 1950-58 2.32° 34.820/00 austan land eru einnig sýndar (2. tafla; 3. og 4. I^Ynd). Verður nánar vikið að þessum efnivið síðar 1 bessum greinaflokki. Lesandinn getur á meðan sPreytt sig á að lesa úr gögnunum. Hin beina tilvitnun hér að framan felur í sér þá sem við teljum skipta höfuðmáli í sambandi } eyðingu fiskstofna, - þ.e. ástand sjávar eða arferði, smáfiskadráp svonefnt, og of mikil sókn ntiðað við aðstæður. Ferillinn mikil sókn og tæknivæðing, sem krefst stöðugt meiri afraksturs til að standa undir kostnaði og arði, og þá aftur meiri sóknar uns kemur að rányrkju og jafnvel hruni, hefur verið nefndur arðnám. (7). Hætt er við að ofveiði felist mest í þessu arð- námi, þar sem náttúran setur svo sín takmörk hverju sinni. Mismunandi ytri og innri náttúruleg skilyrði ein sér geta þó einnig haft sín áhrif án afskipta mannsins. Þekking á þessum skilyrðum er nauðsynleg hverjum þeim sem hugar að náttúru- auðlindum jarðar. Hlýir og kaldir hafstraumar í fslands- álum. ísland er á mótum hlýrra og kaldra strauma, bæði í lofti og legi. Hafstraumarnir eru hlýsærinn að sunnan - Irmingerstraumur eða „Golfstraum- urinn“ - og köldu straumarnir að norðan - Austur-Grænlandsstraumur í Grænlandssundi og Austur-fslandsstraumur fyrir norðaustan land (1. mynd). Þessi lega landsins við meginskilin eða pólfrontinn setur sín mörk á veðurfar og lífið í landinu og á lífið í sjónum umhverfis landið (Atlantssjór, lægðir, útsynningur, háþrýstisvæði, norðaustanátt, svalsær og pólsjór). Lífbeltið í landinu og á miðunum við landið takmarkast af hæð yfir sjó og af straumamótum og blöndunarsvæðum á neðansjávarhryggjum. Þetta lífbelti getur orðið fyrir skakkaföllum af ÆGIR — 415

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.