Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1980, Síða 12

Ægir - 01.02.1980, Síða 12
hafa veiðst í, ali sérstaka stofna, heldur séu rækjurn- ar þar hluti af þeim rækjustofni sem er umhverfis allt ísland." „Endurnýjast þá rækjurnar í fjörð- unum með löngu millibili, þannig að auðn geti orðið á milli?“ ,,Það er fyrst að segja, að aðalrækju- tegundin sem veiðist hér við land, lifir einkurn 1 köldum sjó og fylgir því köldu straumunum. Af því leiðir svo að ekki er von á rækjum af hafi inn a firði, nema á veturna, þegar kaldi sjórinn kemst þangað. Þess vegna er líklegt að rækjumagnið a fjörðum inni endurnýist á veturna, þegar kaldast er í sjónum. Að öllum líkindum slíta veiðarnar svo þessum rækjum einum þangað til nýjar göngur koma úr hafi með köldum straumum veturinn eftir. Hér er algerlega yfirgnæfandi stóri kampalampinn. en hér við land eru til tvær aðrar náskyldar tegundir. sem auðsjáanlega hafa miklu minni þýðingu. Vitan- lega er þessi veiði eins og öll önnur veiði háð marg- víslegum sveiflum í sjónum, eins og mönnum kunnugt frá þorskveiðum, kolaveiðum, ýsuveiðum og hvaða veiðum sem vera skal. En seinast vil ég segja það að mér finnst engin ástæða til kvíða 1 sambandi við framtíð rækjuveiðanna.“ Síðan skýrir blaðið frá því að varðbáturinn framkvæmi nú mælingar hér í Djúpinu og úti a hafi, og er það gert að ósk Árna Friðrikssonar tij þess að fá fyllri vitneskju um hitastig í sjónum, bæén við yfirborð og botn. Þá telur hann einnig að rækju- veiðimenn þurfi að framkvæma hitamælingar alltaf jafnframt veiðiskapnum. Myndin t.v.: Greinarhöfundur hýr '[ svip yfir góðum afla um borð i ba11 sinum. Engilrað. Að ofan: í þessari veiðiferð fengusl ■ tonn af góðri rækju i 4 hölum. 68 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.