Ægir - 01.02.1980, Blaðsíða 62
NÝ FISKISKIP
Neisti HU-5
15. desember s.l. afhenti skipasmiðastöðin Básar
h/f Hafnarfirði, nýtt 24 rúmlesta eikarfiskiskip,
sem er nýsmíði nr. 6 hjástöðinni, og hlautþað nafn-
ið Neisti HU-5. Skipið er afhefðbundinnigerð, með
þilfarshús aftantil áþilfari, og hliðstœttfyrri skipum
frá Básum, en þau hafa verið brevtileg að stœrð.frá
19-29 brl.
Eigandi Neista HU er Daníel B. Pétursson o.fl.
Hvammstanga og skipstjóri á skipinu er Pétur Dan-
íelsson.
Almenn lýsing:
Bolur skipsins er smíðaður úr eik, en yfirbygging
úr áli, samkvæmt reglum Siglingamálastofnunar
ríkisins. Fremsti hluti þilfars er með reisn, en undir
þilfari er skipinu skipt með tveimur þverskipsþilum
í þrjú rúm. Fremst undir þilfari er lúkar, þá fiskilest
og vélarúm aftast. I lúkar eru fjórar hvílur og eldun-
araðstaða, olíukynt Sóló eldavél, kæliskápur og
frystiskápur. Fiskilest er búin áluppstillingu og ál-
plötum í gólfi. í vélarúmi eru tveir brennsluolíu-
geymar i síðum, en feskvatnsgeymir er fremst í lest.
Aftantil á þilfari er vélarreisn og þilfarshús, en
fremst í því er stýrishús, og aftantil, b.b.-megin, er
salernisklefi. Á frammastri er bóma fyrir losunarvír.
Toggálgar eru í afturkanti þilfarshúss.
Mesta lengd .................15.77 m
Lengd milli lóðlína .........14.37 m
Breidd (mótuð) .............. 4.10 m
Dýpt (mótuð) .................. 1.95 m
Lestarrými ca .................. 18 m-1
Brennsluolíugeymar .......... 2.4 m3
Ferskvatnsgeymir ............. 0.6 m3
Rúmlestatala .................. 24 brl.
Skipaskrárnúmer ..............1547
Vélabúnaður:
Aðalvél skipsins er frá Cummins, gerð NT-855-
M, sex strokíca fjórgengisvél með forþjöppu, sem
skilar 265 hö við 1800 sn/mín. Vélin tengist niður-
færslu- og skiptigír frá Twin Disc, gerð MG 509,
niðurfærsla 4.5:1. Skrúfubúnaður er frá Newage
Propulsion, skrúfa er fjögurra blaða með fastri
stigningu, 965 mm, þvermál 1200 mm.
Við fremra aflúttak aðalvélar tengist, gegnum
Twin Disc C 111 PM3 tengsli, tvöföld vökvaþrýsti-
dæla frá Dension af gerð T-3SDC-20-10, afköst
105 1/mínvið 1200sn/mínog 200kp/cm-þrýsting-
Dælan knýr þilfarsvindur skipsins. Aðalvélin knýr
einnig í gegnum reimar jafnstraumsrafal frá Alter-
nator h/f, 7.0 KW, 24 V.
Hjálparvél er frá Thornycroft, gerð 90, fjögurra
strokka fjórgengisvél, sem skilar 15 hö við 1500
sn/mín. Vélin knýr jafnstraumsrafal frá Alternator
h/f, 3.5 KW, 24 V. Einnigknýrhúnígegnumtengsli
vökvaþrýstidælu frá Hamworthy af gerð 1613, af-
köst 44 1/mínvið 1500 sn/mín og 50 kp/cm2 þrýst-
ing. Dælan knýr færavindur, og einnig er hægt 1
neyðartilvikum að nota hana til þess að knýja aðrar
vindur skipsins. Stýrisvél er frá Scan Steering, gerð
MT 500, rafstýrð og vökvaknúin, snúningsvægi 500
kpm.
Til að loftræsta vélarúm og vegna lofnotkunar
véla er rafdrifinn blásari. Rafspenna um borð er 24
V straumur. Vistarverur skipsins eru hitaðar upp
með rafmagni. Fyrir neyzluvatnskerfi og sjóskolun
salernis, er sitt hvor dælan frá Jabsco, 3/8“, knúiu
af 24 V rafmótor.
118 — ÆGIR