Ægir - 01.02.1980, Blaðsíða 61
Afmæliskveðja:
Jón
Benediktsson,
útvegsbónda,
Vogum, 75 ára
Hinn 23. maí 1979 varð Jón Benediktsson, útvegs-
bóndi frá Suðurkoti í Vogum 75 ára. Jón er fæddur
' Vogum 1904.
Jón stundaði sjómennsku á yngri árum, bæði á
°Pnum skipum og stærri bátum. Hann tók að
stunda fiskverkun og útgerð á eigin vegum upp úr
1^30, þar til hann tók við forstjórastarfi hraðfrysti-
hússins í Vogum 1942, sem hann átti ásamt fleirum
°g gengdi því starfi til 1975. Var rekstur þess jafnan
úl fyrirmyndar, enda gætti þar bæði varfærni og fyr-
irhyggju, sem oftast hefur reynzt heilladrjúg í at-
vinnuvegi sem sjávarútvegi, þar sem sveiflur hafa
reynzt tíðar bæði í aflabrögðum og verðlagi sjávar-
afurða.
Jón hefur starfað mikið að félagsmálum, var odd-
viti Vatnsleysuhrepps frá 1938 til 1954, í hrepps-
nefnd frá 1938 til 1974. ÞástarfaðiJónmikiðávett-
vangi Fiskifélags íslands um langt árabil, bæði í
Fiskifélagsdeildinni Dröf-n í Vogum, á fjórðungs-
þingum fiskideilda Sunnlendingafjórðungs og sat á
Fiskiþingi óslitið frá 1957-1976.
Jón Benediktsson er ljúfmenni hið mesta, sann-
gjarn og réttsýnn, og þó fastur fyrir er því var að
skipta. Komu þessir eiginleikar hans ekki sízt skýrt í
ljós á þingfundum, þar sem hann var jafnan reiðu-
búinn að bera klæði á vopnin og að flytja tillögur
er sætt gátu andstæð sjónarmið.
Jón hefur nú að mestu dregið sig í hlé frá önn og
erli langrar starfsævi. Þó er hann enn virkur á fjórð-
ungssambandsþingum og í Fiskifélaginu og fylgist
gjörla með málefnum sjávarútvegsins.
Kona Jóns er Helga Þorvaldsdóttir.
Fiskifélagið sendir Jóni árnaðaróskir og sam-
starfsmenn hans þakka honum ágæta samvinnu.
M.El.
Rækjan við Island
Framhald af bls. 95.
ur oftlega sést vaða í sjólokum
Ufn hábjartan dag.
HEIMILDIR;
Ú Rasmussen, B. 1953. On geographical
variation in growth and sexual devel-
°Pment of the deep prawn (Pandalus
borealis). Rep. Norweg. Fish. Mar.
■nvest. 10 (3) 160 s.
2) Sonina, M.A. 1969. Biology of the
Arcto-Norwegian haddock during
1927-1965. Trudy PINRO, 26:3-111,
115-124 (Fish.Res.Bd. Canada Transl.
Ser., No 1924, 1971).
3) Sund, O. 1930. The renewal of fish
population studied by means of
measurement of commercial catches.
Example: the Arcto-Norwegian cod
stock. Rapp.P.-v. Réun. Cons. Int.
Explor. Mer. (65): 10-17.
4) Unnur Skúladóttir, Einar Jónsson og
Ingvar Hallgrímsson, 1978. Testing
for heterogeneity of Pandalur borealis
populations at Iceland. ICES Shellfish
and Bethos Committee C.M. 1978/K:
27. (Fjölr).
5) Unnur Skúladóttir. 1980. The devi-
ation method. A simple method for
detecting year-classes of a population
of Pandalus borealis from length
distributions. Proceedings of the
Pandalus Workshop in Kodiak in
1979.
ÆGIR — 117