Ægir - 01.02.1980, Blaðsíða 52
Útgerð
og aflabrögð
Allar aflatölur báta miðast við óslægðan fisk, að
undanskildum einstökum tilfellum, og er það þá sér-
staklega tekið fram.
Aflatölur skuttogaranna eru miðaðar við slægð-
an físk, eða aflann í því ástandi sem honum var
landað. Þegar afli báta og skuttogara er lagður sam-
an, samanber dálkinn þar sem aflinn í hverri verstöð
er færður, svo og við samanburð á heildarafla, er
öllum afla breitt í óslægðan fisk. Reynt er að hafa
aflatölur hvers báts og togara sem nákvæmastar,
en það getur verið ýmsum erfíðleikum háð, einkum
ef sama skipið hefur landað í fleiri en einni verstöð
í mánuðinum.
Afli aðkomubáta og togara er talinn með heildar-
afla þeirrar verstöðvar sem landað var í.
Allar tölur eru bráðabirgðatölur, en stuðst er
við endanlegar tölur ársins 1978.
SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND
í desember 1979
I verstöðvum frá Vestmannaeyjum til Stykkis-
hólms réru 164 bátar en á sama tíma 1978 141 bátur.
Heildarbotnfiskafli bátanna varð 5.246 tonn, en
var 1978 3.343 tonn. Sjóferðir bátanna nú urðu 1113,
en voru 891 1978.
Auk þessa afla seldu 18 bátar af svæðinu 1126 tonn
(sl. fiskur) erlendis í mánuðinum. Þá var að auki
landað 1054 tonnum af síld á svæðinu og 3 bátar
veiddu 191 tonn af hörpuskel í 30 sjóferðum.
Aflahæstu línubátarnir voru Þórsnes II SH 109
með 131 tonn í 9 sjóferðum og Jón Finnsson RE 506
með 102 tonn í 2 sjóferðum. Af netabátum voru
með mestan afla Pétur Ingi KE 32 með 103 tonn í 3
sjóferðum og Sandfell GK 82 með 82 tonn i 2 sjó-
ferðum. Hæstur botnvörpubátanna varð Erlingur
RE 65 með 103 tonn í 3 sjóferðum.
Veiðarfæraskipting bátanna var þannig:
Lína: 108 (87) bátar, sem öfluðu 3262 tonn í 781 sjóferð. Meðalafli í sjóferð 4.2 tonn.
Net: 40 bátar (21), sem öfluðu 1531 tonn í 252 sjóferðum. Meðalafli í sjóferð 6.1 tonn.
Botnvarpa: 12 bátar (21), sem öfluðu 453 tonn í 37 sjóferðum. Meðalafli ísjóferð 12.2 tonn.
Handfæri: 1 bátur (2), sem aflaði 6.0 tonn í 9 sjó- ferðum.
20. des. tók gildi þorskveiðibann á bátaflotann,
sem stóð.til áramóta og hættu þá bátarnir róðrum
þann tíma. Gæftir voru fremur stirðar en þó betri
á vesturhluta svæðisins.
í mánuðinum lönduðu 28 (25) skuttogarar 6.552
tonnum (4.673) í 65 (46) löndunum og auk þess
seldu 15 (9) togarar erlendis 1.560 tonn (1.080). Af
togurunum voru aflahæstir ögri RE 72 með 379
tonn, (löndun innanlands og erlendis) og Snorri
Sturluson RE 219, 375 tonn í 2 löndunum innan-
lands.
Aflinn í hverri verstöð miðað við óslœgðan fisk:
1979 1978
tonn tonn
Vestmannaeyjar 870 459
Eyrarbakki 9 2
Þorlákshöfn 917 375
Grindavík 579 153
Hafnir (ársafli) 178 118
Sandgerði 1,392 779
Keflavík 1.463 908
Vogar 60 46
Hafnarfjörður 448 904
Reykjavík 2.796 2.629
Akranes 1.295 761
Rif 324 362
Ólafsvík 827 718
Grundarfjörður 684 229
Stvkkishólmur 134 74
Aflinn í desember Ofreikn. í desember 1978 Samtals afli jan - nóv ... 11.976 260.970 8.517 81 207.396
Heildarbotnfiskafli ársins 272.946 215.832
108 — ÆGIR