Ægir - 01.02.1980, Page 24
tals 14 bátar sem er úthlutað 50% af heildarafla
svæðisins. Á Skagaströnd eru 6 bátar með 22%,
Hvammstangi er með 5 báta og hefur 18% og
Blönduós er með 4 báta og 10%. Þessu til viðbótar
er svo einn bátur frá Djúpuvík í Reykjarfirði, Dag-
rún, skipstjóri og eigandi Lýður Hallbertsson, en
hann selur afla sinn á Skagaströnd, Hvammstanga
og Blönduósi til skiptis og er hann því inn í heildar-
magni þessara staða. Oft á tíðum hefur verið ágætur
afli á Reykjarfirði þótt tregur væri s.l. haust og lítið
veitt þar.
Rækjubátar við austanverðan Húnaflóa hafa sótt
meira á miðin úti af Miðfirði og Hrútafirði og inn
á íjörð. Aftur hafa Steingrímsfjarðarbátar sótt
meira á miðin úti af Steingrímsfirði og Grímsey.
Sjómenn eru yfirleitt sammála um það að rækjan
hafi breiðst út yfir víðara svæði á seinni árum. Nú í
haust var veiðin skárst á grynnra vatni en 50 föðm-
um. Oftast áður hefur mestur afli fengist á 60-110
föðmum.
Öxarfjörður
í öxarfirði fann hafrannsóknaskipið Árni Frið-
riksson rækjumið árið 1975. Veiðar hófust á sama
ári, fyrst voru það bátar frá Húsavík, sem byrjuðu,
en svo komu bátar frá Kópaskeri fljótlega á eftir.
Rækjan var mjög stór og góð, 140-170 stk. í kg
fyrstu árin. f haust hefur hún verið smærri, ca. 200-
250 stk. í kg, enda afli með eindæmum tregur.
Á báðum þessum stöðum var brugðið skjótt við
að útvega húsnæði og vélakost til vinnslunnar og
rekur Fiskiðjuver Húsavíkur verksmiðjuna þar á
staðnum. Hlutafélagið Sæblik h.f. á rækjuverk-
smiðjuna á Kópaskeri en þar eru hluthafar kaup-
félagið og verkalýðsfélag staðarins ásamt fólki úr
hreppunum í kringum Öxaríjörðinn. Á s.l. hausti
var úthlutað 270 tonnum til vors á hvort byggðar-
lagið fyrir sig og eru 6 bátar á Kópaskeri en 7 á
Húsavík. Fyrstu árin var sá kvóti 1000 tonn sem
skiptist einnig jafnt á báða aðila. Alllöng keyrsla er
hjá Húsavíkurbátum á miðin eða um 3'A tími hvora
leið, sem getur orðið ærið torsótt þar sem þetta er
sjóferð fyrir opnu hafi og tíð oft rysjótt á þessum
tíma árs.
Veiðisvæði öxarfjarðar er tiltölulegal lítið að
flatarmáli, en togbotn allgóður. Eftir stórviðris-
garða af hafi er sjávarbotn nokkuð lengi að jafna
sig þar til veiði er von á ný, kannske 2-3 daga. Þó
að ísafjarðardjúp sé meira lokað fyrir miklum sjó-
um af hafi en Öxarfjörður, þá kannast rækjusjó-
menn vestra vel við þetta fyrirbæri. Forðast þeir
gjarnan að reyna veiði á þeim slóðum þar sem þe*r
vita að mest sjávarhreyfing hefur orðið eftir ill-
viðri. Álíta sjómenn að rækjan flýi upp í sjó undan
grugginu sem myndast við mikinn sjó og komi ekki
til botns fyrr en gruggið er sest.
Þegar afli tregast snögglega, eins og t.d. á öxar-
fjarðarsvæðinu, þá vakna venjulega margar spurn-
ingar í huga þeirra sem hagsmuna eiga að gæta,
hverjar orsakirnar muni vera. Oft verður mönnum
fyrst til að ætla að um ofveiði sé að ræða og ein-
blína kannske um of á þann sökudólg. Að vísu geta
veiðisvæði verið það lítil að þau þoli ekki nema
takmarkaðan bátafjölda. Hitt er þó sönnu nær að
mestan þátt í því á hvern hátt aflabrögðin gerast,
hvort sem um er að ræða þorsk eða rækju, munu
eiga hitaskilyrði sjávar.
Haustið 1978 og fram í miðjan febrúar 1979 var
sjór nokkuð hlýr úti fyrir Vestfjörðum og Norður-
landi. En þá gerðust sneggstu hitabreytingar sem
t.d. skipstjórar á Vestfjarðamiðum höfðu mælt síð-
an þeir fengu sjálfvirka hitamæla í skip sín. Kólnun
sjávarins var úr 6° hita niður í 1-3°. Eftir að ísinn
var farinn lá þessi kalda tunga yfir öllu svæðinu
allt frá Vestfjörðum til Austfjarða allt fram í júní-
lok á vestursvæðinu, en mun lengur á eystra svæði
landsins, t.d. úti af N.Austurlandi. íslenskirogrúss-
neskir haffræðingar, sem rannsökuðu þessi svæði
s.l. vor, lýstu því yfir að þarna hefðu átt sér stað
mjög óvenjulegar hitasveiflur sem óvíst væri að
mundu jafna sig nema á alllöngum tíma. En viti
menn. Það líður ekki lengur en fram í miðjan ágúst
þegar skipstjórar mæla sjávarhitann 8° á Halanum,
eða það hæsta sem þeir nokkurn tíma hafa mælt
þar. Með þessum hlýju skilum komu geysimiklar
fiskigöngur upp á kantana og jafnvel smokkfisk-
urinn, sem ekki hafði sést í 15 ár á Vestfjarðamiðum
flæddi nú yfir þau, en talið er að honum henti slík
skilyrði best. Þessi hlýja tunga mjakaðist austur
með landinu og fram í miðjan desember hafði lítil
kólnun átt sér stað. Upp á köntunum úti af Vest-
fjörðum mældist hiti 6-7°, það sama mældist hann
á öxarfjarðarmiðum. Talið er að þetta sé of hátt
hitastig fyrir rækjuna á þessum árstíma og geti þvi
haft slæm áhrif á aflamöguleikana.
Austfirðir
Það mun hafa verið skömmu eftir 1950 sem Garð-
ar Jónsson á Reyðarfirði reyndi rækjuveiðar í firð-
inum og fékk með sér gamalkunnan aflamann frá
ísafirði, Bjarna Hávarðarson, til leiðsagnar. Bjarm
var ættaður frá Norðfirði og hafði verið þar til full-
80 — ÆGIR