Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1980, Síða 31

Ægir - 01.02.1980, Síða 31
Með ofangreinda skilgreiningu 1 huga væri eðlilegt að nefna rækjuna í Arnarfirði og Berufirði tvo stofna án þess að nokkuð væri vitað um líffræði þeirra. Slík skipting er reyndar svo eðlileg, að hún hlýtur að vera hverjum manni augljós. Þótt rækjan geti að vísu fært sig nokkuð úr stað, myndi engum leikmanni detta í hug að fjalla um þessa tvo hópa sern eina heild t.d. í sambandi við ve'ðikvóta, þótt öðru máli gegndi, ef verið væri að fjalla um þorsk á sömu stöðum. Málið vandast ins vegar, er taka skal fyrir rajkju í nærliggjandi fjörðum eins °S t.d. Arnarfirði og ísafjarðar- ^júpi eða Ófeigsfjarðarflóa og eykjarfirði. Sjómenn hafalöng- um verið vantrúaðir á orð fiski- ræðinga um tvo stofna rækju í Arnarfirði og Djúpi, eða stað- æfingar um lítil sem engin tengsl rækjunnar á þessum svæðum við þá rækju sem finnst á grunnunum úti af Vestfjörðum. Stöðugt heyr- ast fullyrðingar um göngur rækju inn á firðina að utan. Ljóst er, að ef svo væri í einhverjum mæli, væru allir stofnstærðarútreikn- ingar fiskifræðinga byggðir á ó- traustum forsendum. Merking rækju er ýmsum erf- iðleikum háð og tvísýnt um end- urheimtur vegna smæðar merkj- anna. Til þess að komast að hinu sanna um göngur rækju hafa því verið notaðar óbeinar aðferðir, sem benda til þess að rækjan sé tiltölulega staðbundið dýr a.m.k. eftir lirfustigið. Hér er átt við at- hugun á líffræðilegum eiginleik- um rækjunnar, sem hafa áréttað þá tilgátu, að rækjan í hverjum firði lifi og hrærist sem eining án mikils sambands við systursínarí næsta firði eða úti fyrir eftir að lirfuskeiði sleppir. Það kemur í ljós, að munur er oft töluverður á ýmsum líffræðilegum eiginleik- um rækju á tveimur svæðum, þótt nærri liggi hvort öðru. Þessi líffræðilegu einkenni liggja sjaldnast í augum uppi fyrir leik- menn, heldur verða oft aðeins fundin með greiningu og mæl- ingu fjölda einstaklinga, og mis- munandi eiginleikar aðeins greindir í tölfræðilegri úrvinnslu. Af því sem að framan er sagt, má ljóst vera, að líffræðiathugan- ir geta skorið úr um, hvort um einn eða fleiri stofna er að ræða, en slíkt er forsenda þess að stofn- stærðarútreikningar geti verið raunhæfir, og þá forsenda fyrir skynsamlegri nýtingu rækjunnar. Frumrannsóknir á líffræðilegu eðli rækjunnar eru því engu veigaminna atriði en beinir fiski- {' Wa. Hliiifall hrygna eftir ahlri og lengil þeirra sem hrygna í fyr.sta sinn. I hafjardaríljúpt hrygna um t.il. 98r< 4ra ára. en af þeim eru um 73% að hrvgna í annað sinn en um 25% ifyrsta sinn. Hrygnir 2ja ára fyrst Lengd Dohrn- hanki Norð- ur- kantur Brygnir 3ja ára fyrst Lengd 0 % 22.0 0% 17.0 Hr.vgnir 4ra ára fyrst Leng’d 0% 25.0 0% 19.3 brygnir 5 ára fyrSt Leng'd 3% 26,0 16% 21.8 brygnir 6 ára fyrst Leng’d 41% 28.5 50% 25.0 firygnir 7 ára fyrst Lengd 26%. 31.2 Sporða- grunn Kol- beins- Gríms- Breiða- ey ey Eldey fi. Jökulf. 28% 63% 0% 18.0 18.4 15.9 0% 5% 50% 29% 55% 18,0 16.8 21,0 20.1 18,1 8% 15% 12% 7% 34% 19.7 18.8 23.0 22.0 19.9 30% 29% 9% 22.1 21.8 21.0 37% 14% 24,9 24.0 5% 4% 25.9 25.6 Ö.xar- A rnarfjörður Húna- Beru- hæg- hrað- Djúp flói fi- fj. va.xta va.xta 0% 0% 0% 0% 16.9 15,6 16.2 16,7 73% 21% 40% 54% 0% 0% 19.7 17,4 18.8 19.8 13.1 17.6 25% 68% 53% 34% 19% 36% 22.0 21.5 21.8 21.3 14.6 20,2 5% 5% 45% 52% 23.0 21.9 16.4 22,0 24% 7% 18,0 23.5 ÆGIR — 87

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.